Pólverjar unnu Þjóðverja - Dönum nægir sigur gegn Svíum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. janúar 2012 16:56 Mynd/AFP
Pólverjar unnu eins marks sigur á Þjóðverjum, 33-32, í fyrsta leik dagsins í milliriðli eitt á Evrópumótinu í Serbíu og þýska liðið á því ekki lengur möguleika á því að komast í undanúrslit á mótinu. Pólverjar eiga enn möguleika á sæti í undanúrslitunum en þurfa að treysta á það að Danir vinni ekki Svía. Danir eru hinsvegar komnir í dauðafæri því sigur gegn Svíum kemur þeim inn í undanúrslitin. Þjóðverjar voru næstum því búnir að stela sigrinum í leikslok en Pólverjar héldu út og tryggðu sér sigur. Bartosz Jurecki og Patryk Kuchczyński skoruðu báðir fimm mörk fyrir Pólverja en Dominik Klein og Christian Sprenger skoruðu báðir sjö mörk fyrir þýska liðið. Pólverjar náðu frumkvæðinu í upphafi leiks og komust í bæði 4-2 og 10-7. Pólverjar voru síðan með fjögurra marka forystu, 14-10, þegar 9 mínútur voru til hálfleiks. Þjóðverjar náðum góðan endaspretti í hálfleiknum og náðu að jafna metin í 15-15, þegar fjórar og hálf mínúta var eftir. Þýska liðið hafði þá unnið síðustu rúmar fjórar mínútur 5-1 en Pólverjar náðu engu að síður að vera 18-17 yfir í hálfleik. Pólverjar héldu frumkvæðinu í seinni hálfleiknum og náðu fjögurra marka forystu um miðjan hálfleikinn, 28-24. Pólverjar voru 29-25 yfir þegar 14 mínútur voru eftir. Þjóðverjar skoruðu þá sex mörk í röð og komust yfir í 31-29 þegar fjórar mínútur voru eftir. Pólverjar svöruðu með tveimur mörkum og lokamínúturnar voru æsispennandi. Þjóðverjinn Dominik Klein fékk beint rautt spjald fyrir gróft brot á Krzysztof Lijewski en bæði Lijewski og Michael Haass fóru í kjölfarið meiddir af velli. Pólverjar komust í 32-31 þegar rétt rúmar tvær mínútur voru eftir og Þjóðverjar tóku leikhlé þegar 90 sekúndur voru eftir. Lars Kaufmann jafnaði metin í 32-32 en Michal Jurecki kom Pólverjum aftur yfir í 33-32 og það reyndist vera sigurmarkið í leiknum.
Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Foreldrarnir að rifna úr stolti: Gunnlaugur manifestaði birtu eftir erfitt vor Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira