Körfubolti

Pólski risinn kallaði leikmenn íslenska landsliðsins dverga

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Strákarnir okkar kippar sér eflaust lítið upp við orð pólska risans.
Strákarnir okkar kippar sér eflaust lítið upp við orð pólska risans. vísir/andri marinó/getty
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta lenti í Berlín í gær þar sem það hefur leik á Evrópumótinu á laugardaginn gegn heimamönnum í Þýskalandi.

Strákarnir okkar luku undirbúningi sínum á fjögurra landa æfingamóti í Póllandi um síðustu helgi þar sem liðið mætti Póllandi, Líbanon og Belgíu.

Ísland byrjaði mótið á föstudaginn var með því að tapa með fimmtán stiga mun, 80-65, gegn sterku liði Póllands, en munurinn á liðunum í hálfleik var eitt stig.

Marcin Gortat, skærustu stjörnu pólska liðsins, var ekkert sérlega skemmt yfir leikstíl þess íslenska. Gortat er miðherji Washington Wizards í NBA-deildinni en hann lék áður með Phoenix Suns.

Hann fór á Twitter eftir leik og skrifaði: „Ganianie krasnali po obwodzie nie jest dla mnie!“

Maciek Baginski, leikmaður Njarðvíkur í Dominos-deild karla, er af pólskum uppruna og þýddi orð Gortat á sinni Twitter-síðu.

„Bein þýðing: Eltast við dverga fyrir utan þriggja stiga línuna er ekki fyrir mig!“ skrifaði Maciek, betur þekktur sem Magic.

Eins og flestir vita er hæðin ekki beint sterkasta vopn íslenska liðsins, en okkar menn fara á Evrópumótið með aðeins einn leikmann sem er hærri en tveir metrar. Það er hinn 218cm hái Ragnar Nathanaelsson.

Arnar Guðjónsson, annar af tveimur aðstoðarþjálfurum íslenska liðsins, var spurður út í orð Gortat í viðtali í Akraborginni í gær og hvort íslensku strákarnir gætu ekki nýtt sér svona viðhorf sem gæti komið upp hjá öðrum liðum.

„Ég held að það sé erfitt fyrir okkur að nýta hugarástand annarra liða. Það er eitt af því sem við höfum enga stjórn á. Við hins vegar ætlum að undirbúa okkur vel, skoða veikleika hinna liðanna og sækja á þá,“ sagði Arnar, en Ísland mætir Þýskalandi í fyrsta leik og þeir eru sagðir smeykir við íslenska liðið.

„Vanmat og ekki vanmat, við höfum enga stjórn á því. Það væri auðvitað fínt ef allir vilja vanmeta okkur. En miðað við það sem ég heyri þegar ég tala við þjálfara annarra landsliða í Evrópu eru Þjóðverjar skíthræddir við okkur,“ sagði Arnar Guðjónsson.

Viðtalið í heild sinni má heyra hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×