Pólitísk réttarhöld

Fréttablaðið Fastir pennar 24. janúar 2012 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Atburðir undanfarinna daga hafa afhjúpað það endanlega, hafi verið vafi í huga nokkurs manns, að málshöfðunin gegn Geir H. Haarde fyrir Landsdómi er pólitísk réttarhöld.
Þetta sýna vel ofsafengin viðbrögð þeirra þingmanna, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu, sem höfðu ekki fram þann vilja sinn að tillögu Bjarna Benediktssonar um að Alþingi falli frá ákærunni yrði vísað frá.

Fréttablaðið sagði þannig í gær frá því að allt léki á reiðiskjálfi í báðum þingflokkum stjórnarliðsins yfir því að frávísunartillagan hefði ekki verið samþykkt. Í Samfylkingunni beindist reiðin að Össuri Skarphéðinssyni, sem mætti til þings og greiddi atkvæði gegn frávísuninni þrátt fyrir að einhverjir hefðu ekki búizt við honum, og í Vinstri grænum að Ögmundi Jónassyni, sem skipti um skoðun í málinu og vill nú samvizku sinnar vegna falla frá ákæru á hendur Geir. Tveir aðrir VG-þingmenn studdu Ögmund í því að fella frávísunartillöguna.

Hamagangurinn í VG er ögn skiljanlegri en uppnámið í Samfylkingunni, því að í upphaflegri atkvæðagreiðslu um hvort ákæra bæri fyrrverandi ráðherra stóð flokkurinn einhuga að ákærum á alla, sem þingmannanefnd hafði gert tillögu um.

Í Samfylkingunni var hins vegar ekki lögð nein lína um þá atkvæðagreiðslu, eða það var fólki talin trú um. Þingmenn greiddu atkvæði með mismunandi hætti; sumir vildu ákæra alla ráðherrana fjóra, aðrir vildu engan ákæra og sumir vildu bara ákæra suma. Það var síðastnefndi hópurinn, sem þannig réði því að Geir var einn ákærður en fyrrverandi ráðherrum Samfylkingarinnar hlíft.

Æsingurinn sem greip einstaka þingmenn Samfylkingarinnar yfir því að Össur skyldi koma til þings og vera sjálfum sér samkvæmur, bendir til að þeir telji að sannfæring þingmanna hafi alls ekki átt að ráða þegar greidd voru atkvæði um frávísunartillöguna, heldur pólitík – sú pólitík að ákæra fyrrverandi leiðtoga annars stjórnmálaflokks fyrir gerðir eða aðgerðaleysi ríkisstjórnar, sem leiðtogar Samfylkingarinnar sátu einnig í.

Af sama toga er yfirlýsing ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar um vantraust á Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, fyrir að vinna vinnuna sína og setja tillögu Bjarna Benediktssonar á dagskrá. Ungliðarnir telja að þingforsetinn hefði hvorki átt að fara eftir þingsköpunum né hlusta á lögfræðinga, sem töldu tillöguna tæka. Hún hefði átt að taka pólitíska afstöðu með þeim sem studdu ákæruna á Geir, í stað þess að vera forseti alls Alþingis og gæta að lögum og þingsköpum.

Einhver allra mesta dellan í málflutningi ungra jafnaðarmanna og skoðanasystkina þeirra á þingi er að með því að fjalla um tillögu Bjarna vegi Alþingi að sjálfstæði dómstólanna og þrískiptingu ríkisvaldsins og blandi sér í störf Landsdóms. Fyrir Landsdómi væri ekkert mál ef Alþingi hefði ekki ákært Geir H. Haarde. Eins og þingið ákvað að vísa málinu til Landsdóms getur það líka ákveðið að draga það til baka.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Pólitísk réttarhöld