Innlent

PJ Harvey á Iceland Airwaves

Birgir Olgeirsson skrifar
Breska tónlistarkonan PJ Harvey og breska bandið Lush munu koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem verður haldin 2. – 6. nóvember næstkomandi. Þetta kemur fram í fyrstu tilkynningunni sem hátíðin sendir frá sér þar sem listamenn eru kynntir til sögunnar.

Þeirra á meðal eru rappararnir GKR, Sturla Atlas og Reykjavíkurdætur. Þá munu Mammút, Mr. Silla, Axel Flóvent og Múm & Kronos Quartet koma fram á hátíðinni og einnig bandaríska tónlistarkonan Julia Holter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×