Glamour

Pharrell viðurkennd tískugoðsögn

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Pharrell Williams er opinberlega orðinn tískugoðsögn eftir að hann nældi sér í 2015 CFDA Fashion Icon verðlaun.

Verðlaunin voru veitt og valin af formanni CFDA, Diane von Furstenberg, ásamt öðrum stjórnarmeðlimum ráðsins.

„Ef orðið æðislegur væri persóna, þá væri það Pharrell, ekki einungis vegna útlitisins og klæðaburðar hans heldur einnig vegna þess hversu almennilegur hann er,“ sagði Von Furstenberg.

Með þessum verðlaunum gengur hann í hóp þeirra Rihönnu, Johnny Depp, Lady Gaga, Iman, Kate Moss og Nicole Kidman sem áður hafa verið heiðruð.

Verðlaunin eru færð þeim einstaklingi sem hefur hefur stíl sem hefur áhrif á heimsmælikvarða.

Glamour/Getty
Glamour/Getty
Glamour/Getty





×