Lífið

Pétur Jóhann söng hástöfum með Úlfi Úlfi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Pétur Jóhann Sigfússon býður reglulega vel völdum einstaklingum með sér í ísbíltúr í Íslandi í dag. Í gær voru það strákarnir í Úlfur Úlfur sem voru farþegar grínistans góðkunna.

Pétur Jóhann og strákarnir tóku meðal annars lagið 100.000 í ísbíltúrnum og má sjá afraksturinn í myndbandinu að ofan.

Velta má fyrir sér hvort Pétur Jóhann sé nokkuð að færa sig meira í átt til James Corden sem reglulega tekur tónlistarfólk á rúntinn, grínast í því og syngur með þeim vinsælustu lög þeirra.

Adele og Chris Martin eru á meðal þeirra sem farið hafa með Corden á rúntinn en þau innslög má sjá í tengdum fréttum hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×