Sport

Peterson segist ekki vera barnaníðingur

Adrian Peterson.
Adrian Peterson. vísir/getty
Það er fast sótt að einni stærstu stjörnu NFL-deildarinnar, Adrian Peterson, þessa dagana eftir að hann lamdi son sinn með trjágrein.

Peterson spilaði ekki með Minnesota Vikings um helgina vegna málsins en hann hefur verið kærður fyrir barnaníð enda sást á syninum unga. Hann mun þó spila um næstu helgi ef að líkum lætur.

Hlauparinn öflugi hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segist ekki vera fullkominn en þrátt fyrir það sé hann enginn barnaníðingur.

„Ég bjóst aldrei við því að vera í þeirri stöðu að heimurinn efaðist um hæfileika mína sem foreldri eða teldi mig vera barnaníðing. Ég ætlaði mér aldrei að meiða son minn," segir Peterson meðal annars í yfirlýsingunni og heldur áfram.

„Ég þarf að lifa með þeirri staðreynd að ég agaði son minn eins og ég var agaður er ég var barn. Hann meiddi sig mun meira en til stóð. Ég veit að margir eru mótfallnir mínum aðferðum til þess að aga barn og ég veit líka, eftir að hafa hitt sálfræðing, að það eru til fleiri aðferðir til þess að aga börn.

„Ég hef lært mikið af þessu og þarf að endurskoða mínar aðgerðir. Ég mun læra af mistökunum og reyna að verða betra foreldri. Ég er ekki fullkominn sonur, eiginmaður né foreldri en ég er alls enginn barnaníðingur."

Yfirlýsing Peterson hefur verið talsvert gagnrýnd enda biðst hann ekki afsökunar á hegðun sinni og þar kemur einnig fram að hún sé skrifuð að beiðni lögfræðings hans.

Í gærkvöld komu svo fram nýjar ásakanir sem eiga að vera um ársgamlar. Þá meiddist sonurinn á höfði og Peterson er sagður eiga sökina. Það mál mun skýrast betur á næstu dögum.

NFL

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×