Lífið

Perlukjól Lupitu stolið

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lupita Nyong'o ásamt J.K. Simmons á Óskarsverðlaunahátíðinni um liðna helgi.
Lupita Nyong'o ásamt J.K. Simmons á Óskarsverðlaunahátíðinni um liðna helgi. Vísir/Getty
Perlukjól leikkonunnar Lupitu Nyong‘o, sem hún klæddist á Óskarsverðlaunahátíðinni síðastliðinn sunnudag, var stolið frá London West Hollywood-hótelinu í gær.

Lögreglan í Los Angeles rannsakar nú málið en kjóllinn kostar 150.000 dollara eða sem samsvarar 20 milljónum íslenskra króna.

Kjóllinn er hannaður af Francisco Costa fyrir tískuhús Calvin Klein. Meira en 6.000 handsaumaðar perlur í fimm mismunandi stærðum prýða kjólinn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×