Körfubolti

Pedersen: Slæmt umtal hafði engin áhrif

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Craig Pedersen, landsliðsþjálfari Íslands.
Craig Pedersen, landsliðsþjálfari Íslands. Vísir/Bára
Craig Pedersen var ánægður með frammistöðu íslenska landsliðsins eftir fimm stiga sigur á Finnlandi í kvöld, 81-76. Með sigrinum heldur Ísland í vonina um að komast á HM 2019.

„Þetta var mikilvægur sigur. Það er nokkuð síðan að við unnum síðast leik enda höfum við verið að spila við sterkar þjóðir - meðal annars Finnland. Það var ekki bara mikilvægt að vinna leikinn heldur einnig hvernig við unnum leikinn. Við spiluðum vel í kvöld,“ sagði Pedersen við Vísi eftir leikinn í kvöld.

„Þó svo að það hafi ekki allt gengið upp í kvöld vorum við að gera margt mjög vel og betur en í síðustu leikjum. Baráttan var til staðar í kvöld og hún þarf að vera það líka á sunnudag,“ sagði hann enn fremur.

Umræðan um landsliðið síðustu árin hefur verið afar jákvæð en gagnrýni hefur látið á sér kræla síðustu daga og vikur. Pedersen segir að það hafi engin áhrif haft á leikmenn.

„Það var einhver umræða í byrjun vikunnar en það var aldrei komið með þetta inn á æfingar. Ég fann aldrei fyrir þessu í loftinu á æfingum. Þetta var raunar mun betri æfingavika en ég bjóst við. Hún hefur verið algerlega framúrskarandi.“

Ísland mætir Tékklandi á sunnudag í mikilvægum leik og þá snýr Tryggvi Snær Hlinason aftur í liðið en hann var veðurtepptur í Svíþjóð í kvöld og komst því ekki í leikinn.

„Tékkarnir eru með nokkra mjög stóra leikmenn og við þurfum því að Tryggvi verði klár í slaginn eins fljótt og mögulegt er. Ef við hefðum þurft að velja á milli leikja sem Tryggvi gæti spilað þá hefði það verið leikurinn á sunnudag. Við þurfum á hæðinni hans að halda,“ sagði Pedersen sem segist auðvitað vonsvikinn að Tryggvi hafi misst af leiknum í kvöld.

„Við hefðum getað notað Tryggva nokkrum sinnum í kvöld. En á móti kemur að við þurfum að breyta vörninni okkar þegar hann spilar og það getur stundum verið ruglingslegt. Það væri auðvitað alltaf betra að eiga þann möguleika að geta notað leikmann eins og Tryggva. En maður hefur enga stjórn á sumum málum og þetta var eitt af þeim.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×