Enski boltinn

Paul Scholes: Guardiola verður stjóri Manchester City

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pep Guardiola.
Pep Guardiola. Vísir/Getty
Paul Scholes, fyrrum leikmaður Manchester United, heldur því fram að Pep Guardiola verði knattspyrnustjóri Manchester City þegar hann hættir með Bayern München.

Samningur Pep Guardiola við Bayern München rennur út sumarið 2016 en hann hefur gefið það út að hann ætli að klára öll þrjú árin í þessum samningi.

Manuel Pellegrini, núverandi knattspyrnustjóri Manchester City, er valtur í sessi en liðið hefur gefið mikið eftir að undanförnu . City-liðið er komið alla leið niður í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar þegar allir bjuggust við því að liðið myndi berjast um Englandsmeistaratitilinn við Chelsea enda liðin jöfn á toppnum á Nýársdag.

„Allt sem ég heyri frá Manchester er að Pep Guardiola fái þetta starf þegar samningur hans við Bayern München rennur út á næsta ári," skrifaði Paul Scholes í pistil sínum í Independent.

Pep Guardiola er efstu á óskalista Manchester City samkvæmt heimildum Guardian en félagið hefur ekki mikinn áhuga á því að ráða menn eins og Carlo Ancelotti, Diego Simeone, Rafael Benítez eða Jürgen Klopp.

Scholes skrifaði líka um Jürgen Klopp. „Það er enginn vafi í mínum huga að hann mun ná góðum árangri í ensku úrvalsdeildinni. Eina spurningin er bara hjá hvaða félagi," skrifaði Scholes.

 

Scholes telur jafnframt að Guardiola og Klopp séu stjórar sem geti komið enskum liðum alla leið í Meistaradeildinni en að í dag sé enginn breskur stjóri líklegur til að ná góðum árangri í Meistaradeildinni.

„Ég held að það sé enginn breskur stjóri starfandi í dag sem getur komið ensku liði alla leið í Meistaradeildinni. Þannig er bara staðan þótt að hún sé allt annað en skemmtileg. Ég vona samt að þetta breytist í framtíðinni og ég ber miklar væntingar til þess að vini mínum Ryan Giggs verði boðin knattspyrnustjórastaðan hjá Manchester United á einhverjum tímapunkti," skrifaði Scholes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×