Handbolti

Patrekur samdi til 2020

Patrekur með Haukunum.
Patrekur með Haukunum.
Austurríkismenn eru greinilega ánægðir með störf Patreks Jóhannessonar sem landsliðsþjálfara því þeir eru búnir að semja við hann til ársins 2020.

Patrekur tók við liðinu árið 2011 og hefur gert virkilega fína hluti með Austurríkismenn sem eru að byggja upp nýtt lið.

Patrekur segir á heimasíðu austurríska sambandsins að hann sé bæði stoltur og glaður með að fá að stýra liðinu næstu árin.

Hann mun þó halda áfram að stýra liði Hauka í Olís-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×