Körfubolti

Passað upp á Okafor eins og smábarn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jahlil Okafor.
Jahlil Okafor. vísir/getty
Þar sem nýliði Philadelphia 76ers, Jahlil Okafor, hefur verið gjarn á að lenda í vandræðum utan vallar mun öryggisvörður nú fylgja honum eftir í hvert fótmál.

Okafor er búinn að lenda í að minnsta kosti fjórum, vondum uppákomum utan vallar.

Byssu var beint að honum á bar í október, hann slóst við stuðningsmenn í Boston, var tekinn fyrir of hraðan akstur og svo reyndi hann líka að nota fölsuð skilríki á bar.

Þeir sem standa honum næst hafa óskað þess að Sixers sjái til þess að hann fái gæslu er hann fer út úr húsi. Barnapíu sem passi upp á að hann komi sér ekki í frekari vandræði.

Okafor var valinn þriðji í síðasta nýliðavali. Hann spilaði með Duke í háskólaboltanum og hefur spilað vel með Sixers þrátt fyrir allt vesenið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×