Innlent

Par handtekið fyrir að hafa stolið bílum

Gissur Sigurðsson skrifar
vísir/pjetur
Lögreglan á Selfossi var ekki fyrr búin að sleppa lausu pari, sem handtekið var í fyrrinótt eftir að hafa ekið stolnum bíl út af Kjalvegi, en parið virðist hafa stolið öðru bíl sem stóð fyrir utan sundhöllina á Selfossi. Þaðan lá leiðin til Reykjavíkur þar sem sást til bílsins í gærkvöldi, en hann hvarf og er nú leitað.

Þegar fólkið var handtekið á Kili í fyrrinótt voru þau bæði undir áhrifum fíkniefna og bæði hafa áður komið við sögu lögreglu vegna ýmissa brota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×