Erlent

Pamela Anderson mótmælir hvalveiðum Íslendinga

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Pamela Anderson er ekki hrifin af hvalveiðum Íslendinga.
Pamela Anderson er ekki hrifin af hvalveiðum Íslendinga. Vísir/Getty
Pamela Anderson, sem er best þekkt fyrir leik sinn í hinum geysivinsælu þáttum Strandvörðum, mótmælir hvalveiðum Íslendinga á Twitter-síðu sinni.

Í færslunni deilir hún frétt á vef Environmental Investigation Agency sem fjallar um þrýsta verði á HB Granda vegna tengsla fyrirtækisins við hvalveiðar.

Anderson hefur löngum verið kunn fyrir baráttu sína fyrir dýravernd en skemmst er að minnast þátttöku hennar í mótmælaaðgerðum Sea Shepherd-samtakanna gegn grindhvalaveiðum Færeyinga í ágúst síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×