Pálmi Rafn skoraði fyrir Stabæk sem hrundi í seinni hálfleik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. september 2011 19:37 Pálmi Rafn á æfingu íslenska landsliðsins árið 2009. Mynd/Stefán
Mark Pálma Rafns Pálmasonar fyrir Stabæk gegn Tromsö í norsku úrvalsdeildinni í kvöld dugði skammt þar sem að síðarnefnda liðið vann á endanum 4-2 sigur. Pálmi Rafn kom sínum mönnum í 2-1 forystu skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks. Hins vegar gekk allt á afturfótunum hjá Stabæk í seinni hálfleik því Tromsö skoraði þá þrívegis og tryggði sér öruggan sigur. Það kann þó ekki að segja alla söguna því samkvæmt úttekt síðunnar altomfotball.no sköpuðu leikmenn Stabæk sér átján marktækifæri í leiknum en Tromsö tólf. Stabæk hefur átt í miklum fjárhagsvandræðum að undanförnu og hefur til að mynda verið afar fáliðað á æfingum liðsins. Engu að síður hefur því gengið ágætlega á tímabilinu og er Stabæk nú í fjórða sæti deildarinnar með 33 stig, þrátt fyrir að hafa ekki unnið í síðustu þremur leikjum sínum. Tromsö er í öðru sæti deildarinnar með 39 stig, fimm stigum á eftir toppliði Molde. Þjálfari þess er Ole Gunnar Solskjær, fyrrum leikmaður Manchester United.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Fleiri fréttir Víkingur - FH | Heldur FH sigurgöngunni áfram? Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Sjá meira