Guðmundur Andri Thorsson

Guðmundur Andri Thorsson

Greinar eftir Guðmund Andra úr Fréttablaðinu.

Fréttamynd

Tilskipun Viðskiptaþings

Ekki er hægt að kalla Viðskiptaþing einhverja grínistasamkomu. Þetta er vettvangur þeirra sem láta að sér kveða í hinu svonefnda viðskiptalífi – þennan vettvang notar forsætisráðherra landsins til að koma á framfæri hugmyndum sínum um samskipti Íslendinga við Evrópusambandið; þarna ráðslaga menn um það hvernig hér skuli umhorfs árið 2015; þarna er stefnan sett; kúrsinn settur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ímyndið ykkur allt þetta fólk

Framtak Jótlandspóstsins var til þess að niðurlægja frekar fólk sem taldi sig þegar niðurlægt. Það var til að magna elda. Það var til að kynda undir hatur. Það var til að æsa upp tilfinningar af trúarlegum og kynþáttalegum toga. Þurfum við á slíku að halda?

Fastir pennar
Fréttamynd

Nú er að hamra járnið

Páll Valsson skar upp herör um daginn til varnar íslenskunni sem lifandi máli; og heill og heiður honum. Undirtektir voru ýmislegar svo sem vænta mátti, en það sem þó skipti mestu var að menntamálaráðherra fagnaði þessum umræðum og virtist jafnvel deila þessum áhyggjum, samkvæmt viðtali við Moggann. Það eru tíðindi og brýnt að halda við þessum áhuga ráðherrans, því margt er undir Þorgerði Katrínu komið í þessu máli.

Fastir pennar
Fréttamynd

Engin moðsuða í Garðabæ

Því er það fagnaðarefni að fram komi listi með svo afdráttarlausum sérkennum. Þetta er algerlega prjállaus listi og verður það vonandi áfram svo að kjósendur fái nú einu sinni skýrar línur - hér er flokkur sem kemur nákvæmlega til dyranna eins og hann er klæddur: í jakkaföt með bindi; listi þar sem er engin kona, engin ung manneskja, engin gömul manneskja, engin fötluð manneskja, með öðrum orðum ekkert skrýtið fólk sem truflar bara ákvörðunartökuna með þvaðri um hluti sem koma málum ekkert við; bara miðaldra karlmenn, hið eðlilega kyn.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sannleikurinn rúmast ekki í fyrirsögn

Það sem varð blaðinu í þessari mynd um síðir að falli var að það sendi frá sér þau skilaboð að það liti á þjóðina sem óvin; ef ekki væri gert lítið úr viðkomandi væri um að ræða kranablaðamennsku. Úr varð klóakblaðamennska.

Fastir pennar
Fréttamynd

Græðgi

Græðgi er andfélagsleg hegðun, eins og fyllerí á almannafæri eða annar dónaskapur. Hálaunamaður sem gerir samning um enn hærri laun sem hann þarf ekkert á að halda er eins og alkóhólisti "í neyslu", hann veit að framferði hans er orðið ofboðslegt og veldur almennri andúð og hefur snúist upp í andhverfu þess sem til var stofnað í upphafi - það er að segja að afla viðkomandi meiri virðingar meðal samferðafólks - en samt gerir hann enn fáránlegar kröfur um ofurkjör, hann er búinn að missa alla stjórn á aðstæðunum, ræður ekki við sig, er í einhvers konar vímu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Og liðið er nú ár

Var ekki árið svolítið eins og stund milli stríða? Logn eftir storminn? Eða á undan honum? Ár hins lognmilda Geirs Haarde?

Fastir pennar
Fréttamynd

Kona bara skilur þetta ekki

Árni hófst til valda sem ráðherra jafnréttismála með því að Siv Friðleifsdóttir var látin víkja sem ráðherra, þrátt fyrir dygga þjónustu við það mikla baráttumál flokksins og einkum þó formannsins, Halldórs Ásgrímssonar, að koma á fót Kárahnúkavirkjun. Þótt hann væri tæpur uppbótaþingmaður með enga reynslu af þingstörfum bolaði Árni þannig burt úr ráðherrasæti efsta manni Framsóknar í Reykjanesi - konu sem náð hafði mun skárri árangri en formaðurinn í kosningum - og var tekinn fram yfir Jónínu Bjartmars

Fastir pennar
Fréttamynd

Bókaskraf í Haukshúsum

Hljóta það ekki að teljast ein helstu tíðindi þessa bókmenntaárs að Þórarinn skuli nú senda frá sér ljóðabók handa fullorðnu fólki, þá fyrstu í fjöldamörg ár?

Fastir pennar
Fréttamynd

Gef

Sá og sú sem kropið hefur við læk í íslenskri sveit og bergt af honum hefur fundið bragðið af sjálfri jörðinni eins og hún er óspillt og okkur gefin til varðveislu og nytja.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vannýtt auðlind

Þegar maður sat heima í stofu og gjóaði auga á þessa árshátíð þeirra sem fást við lifandi myndir á Íslandi þá skynjaði maður ­óvenju sterkt að eitthvað er að.

Fastir pennar
Fréttamynd

No nonsens frambjóðandi

Þegar Vilhjálmur Þ. talar um borgarmálefni er hann eins og þaulvanur hljóðfæraleikari í góðum gír á balli, geislandi af öryggi og hæfilega tempraðri spilagleði.

Fastir pennar
Fréttamynd

Framferði Landsvirkjunar

Stjórnendur Landsvirkjunar virðast starfa eftir þeirri hugmynd að fyrirtækið sé nokkurs konar þjóðkirkja og það sé enn ríkistrú á Íslandi að orku skuli aflað með því að sökkva landssvæðum undir lón.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ónefndur maður og hirðmenn hans

Orð Styrmis Gunnarssonar í bréfi til Jónínu Benediktsdóttur um "innmúraða" og "ófrávíkjanlega" tryggð Jóns Steinars við "ónefndan mann" segja meira en mörg orð um það andrúmsloft sem fylgdi stjórnarháttum Davíðs Oddssonar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvenær sækir maður um?

...kemur svo inn í stofu, rjóður og vandræðalegur og segir að endanleg ákvörðun muni liggja fyrir senn en þangað til standi umsókn sín – eiginlega...

Fastir pennar
Fréttamynd

Um veiðimennsku

Hví ekki að hugsa dæmið alveg upp á nýtt, snúa því við og láta menn hreinlega borga fyrir að skjóta mink og tófu?

Fastir pennar
Fréttamynd

Spáðu í mér?

Breytingin er þessi: þegar sögninni "að spá" fylgir forsetningin "í" er hún allt í einu farin að taka þágufall með sér í stað þolfalls eins og fyrr.

Fastir pennar
Fréttamynd

Goodbye Lenin

Við eigum að minnast Reykjavíkurlistans með hlýhug. Í minningargreinum um mjög leiðinlegt fólk er stundum sagt: hann/hún var ekki allra - en Reykjavíkurlistinn var nefnilega einmitt allra: Hann var hreyfing á meðan hann var og hét...

Fastir pennar
Fréttamynd

Sérleyfi til manndrápa

Engum dettum í hug að Harry S. Truman hafi verið skrímsli á borð við Maó eða Stalín - þessi yfirkennaralegi maður úr vinstri armi Demókrataflokksins tók engu að síður ákvörðunina um kaldrifjað fjöldamorð á óbreyttum borgurum af meiri stærðargráðu en áðurnefndir kandídatar um titilinn versti maður 20. aldarinnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Morðingjar en ekki múslimar

Morðingjarnir í London voru ekki múslimar. Ódæðisverkin í London beindust gegn múslimum rétt eins og öðrum íbúum þessarar stórkostlegu heimsborgar

Fastir pennar
Fréttamynd

Hannes betri Laxness en Halldór?

Mánudaginn 13. júní rifjaði ég upp fyrir lesendum Fréttablaðsins vinnulag Hannesar H. Gissurarsonar við ritun ævisögu Halldórs Laxness og líkti því við fjandsamlega yfirtöku.

Fastir pennar
Fréttamynd

Óje

Á meðan skyrframleiðendur komast átölulaust upp með að nefna drykki sína upp á ísl-ensku svo að börnin skilji hvað hér sé á ferðinni þá eru málfarsyfirvöld á þönum að skera úr um það hvort fólk megi nefna börn sín þeim nöfnum sem andinn blæs þeim í brjóst.

Fastir pennar