Innlent

Óvíst hvort farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn, sem rennur út á morgun, var til tveggja vikna.
Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn, sem rennur út á morgun, var til tveggja vikna. VÍSIR/Anton Brink
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur sem grunaðir eru um að hafa ráðið Birnu Brjánsdóttur bana fyrir rúmum hálfum mánuði, en gæsluvarðhaldsúrskurðurinn yfir þeim rennur út á morgun. Ákvörðun ætti að liggja fyrir í lok dags eða á morgun, segir Grímur Grímsson, sem stýrir rannsókninni á máli Birnu.

Þá segir Grímur að annar grunaðra verði yfirheyrður í dag. Báðir voru yfirheyrðir í gær en engar játningar komu fram. Aðspurður segir Grímur málið hafa skýrst að einhverjum hluta, lögregla hafi betri yfirsýn yfir heildarmyndina, en vill að öðru leyti lítið tjá sig um málið að svo stöddu.

Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn yfir mönnunum tveimur var til tveggja vikna en rennur að óbreyttu út á morgun.

Birna Brjánsdóttir verður borin til grafar á föstudaginn.


Tengdar fréttir

Munu fjölga myndavélum í miðbænum

Ofbeldisvarnarnefnd í Reykjavík fundaði í gær með Degi B. Eggertssyni og Sigríði Björk Guðjónsdóttur, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins

Sigríður Björk vill efla kynferðisbrotadeild og öryggi kvenna

"Það er staðreynd að konur upplifa sig ekki öruggar í fjölmörgum aðstæðum. Mál Birnu Brjánsdóttur er hræðileg áminning um þetta og það væri mikil synd ef ein afleiðing þess glæps, sem þar var framinn verði að konur verði hræddari en áður.“ Þetta segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem fundar með borgarstjóra á mánudaginn næstkomandi um aukið öryggi í Reykjavík.

Lögreglan telur sig vita hvernig Birnu var ráðinn bani

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókn lögreglu í máli Birnu Brjánsdóttur, segist eiga von á því að skipverjarnir tveir af Polar Nanoq, sem sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um að bera ábyrgð á dauða Birnu, verði yfirheyrðir á morgun frekar en í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×