Tónlist

Óviss um framtíð Smashing Pumpkins

Billy Corgan er óviss um framtíð Smashing Pumpkins.
Billy Corgan er óviss um framtíð Smashing Pumpkins. Vísir/Getty
Billy Corgan forsprakki hljómsveitarinnar Smashing Pumpkins hefur gefið til kynna að hljómsveitin muni leggja upp laupana eftir að næstu tvær plötur koma út. Sveitin sendir frá sér tvær plötur árið 2015 en þær bera nöfnin, Monuments To An Elegy og Day For Night.
 
Eins og margir vita þá hætti hljómsveitin árið 2000 en snéri aftur árið 2006 og hafa þrjár plötur litið dagsins ljós síðan, fyrir utan þær tvær sem væntanlegar eru.

Í viðtali sem birtist á NME, segist hann ætla láta viðbrögð almennings við væntanlegum plötum ráða ferðinni, annað hvort eigi fólki eftir að líka við nýja efnið og þess háttar eða ekki.

Hann segist jafnframt vera leiður á því að fólk vænti þess að sveitin spili eingöngu sitt eldra efni, að margir líti á sveitina sem endurkomuhljómsveit sem eigi bara að leika gamalt efni. Þá bætti hann við að það væri algjört lykilatriði fyrir hljómsveitir að halda áfram að skapa nýtt efni, til að standa ekki í stað.

Miklar mannabreytingar hafa átt sér stað innan sveitarinnar undanfarin ár og er það enginn annar en Tommy Lee sem hefur verið að tromma inn á nýju plöturnar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×