Körfubolti

Óvæntur sigur hjá Lakers | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fjarvera Kobe Bryant kom ekki að sök í nótt.
Fjarvera Kobe Bryant kom ekki að sök í nótt. vísir/afp
Ellefu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Los Angeles Lakers vann óvæntan tíu stiga sigur, 105-115, á Golden State Warriors á heimavelli. Kobe Bryant, þriðji stigahæsti leikmaður deildarinnar í vetur, lék ekki með Lakers í nótt en það kom ekki að sök.

Carlos Boozer kom sterkur inn af bekknum og var stigahæstur í liði Lakers með 18 stig, auk þess sem hann tók níu fráköst. Ronnie Price skilaði 17 stigum og átta stoðsendingum. Stephen Curry skoraði 22 stig fyrir Golden State, en tapið í nótt var aðeins það fjórða hjá liðinu í vetur.

Atlanta Hawks hélt sigurgöngu sinni áfram með því að leggja Los Angeles Clippers að velli, 107-104. Þetta var 14. sigur Atlanta í síðustu 15 leikjum.

DeMarre Carroll setti persónulegt met með því að skora 25 stig fyrir Atlanta. Hann reif einnig niður 10 fráköst. Paul Millsap átti einnig góðan leik með 17 stig, níu fráköst og sjö stoðsendingar.

Blake Griffin var atkvæðamestur í liði Clippers með 21 stig, átta fráköst og 11 stoðsendingar. Þá skoraði DeAndre Jordan 15 stig, tók 22 fráköst og varði fjögur skot.

LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers áttu ekki í miklum vandræðum með Minnesota Timberwolves á heimavelli. Lokatölur 125-104, Cleveland í vil sem hefur unnið tólf af síðustu 15 leikjum sínum.

Kyrie Irving var stigahæstur í liði Cleveland með 29 stig, James skoraði 24 stig og þá skoraði Kevin Love 20 stig og tók 10 fráköst gegn sínum gömlu félögum.

Andrew Wiggins var stigahæstur í liði Úlfanna með 27 stig gegn liðinu sem valdi hann upphaflega í nýliðavalinu í sumar.

Úrslitin í nótt:

Minnesota Timberwolves 104-125 Cleveland Cavaliers

New Orleans Pelicans 84-96 Indiana Pacers

Boston Celtics 95-100 Orlando Magic

Chicago Bulls 99-91 Washington Wizards

Los Angeles Clippers 104-107 Atlanta Hawks

Denver Nuggets 96-102 Brooklyn Nets

Philadelphia 76ers 91-87 Miami Heat

Charlotte Hornets 108-101 Milwaukee Bucks

Portland Trail Blazers 115-111 Oklahoma City Thunder

Dallas Mavericks 115-124 Phoenix Suns

Golden State Warriors 105-115 Los Angeles Lakers

Rosaleg troðsla hjá DeAndre Jordan Andrew Wiggins átti flottan leik í nótt Kyrie Irving sýndi ýmsar boltakúnstir í nótt
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×