Ótrúlegt jafntefli á Stamford Bridge | sex marka leikur Stefán Árni Pálsson skrifar 5. febrúar 2012 00:01 Mynd/Nordic Photos/Getty
Chelsea og Manchester United gerði ótrúlegt 3-3 jafntefli á Stamford Bridge í ensku úrvalsdeildinni í dag en Chelsea komst þremur mörkum yfir. Lærisveinar Alex Ferguson gefast aftur á móti aldrei upp og náðu að jafna metin 3-3. Chelsea skoraði fyrsta mark leiksins á 36.mín þegar Daniel Sturridge fór framhjá Patrice Evre eins og að drekka vatn, ætlaði að senda boltann fyrir teiginn en þaðan fór hann í Jonny Evens, leikmann Manchester United, og í netið. Virkilega klaufalegt sjálfsmark og Chelsea komið yfir. Staðan var 1-0 fyrir heimamenn í hálfleik. Það tók aftur á móti Chelsea ekki nema 24 sekúndur að skora annað mark í upphafi síðari hálfleiksins en þá hamraði Juan Mata boltanum í netið eftir fína fyrirgjöf frá Fernando Torres. Fimm mínútum síðar komst Chelsea í 3-0 þegar David Luiz skallaði boltann í netið. Ótrúlegar upphafsmínútur í síðari hálfleiknum og heimamenn nánast búnir að klára leikinn. Nokkrum mínútum síðar krækti Patrice Evra í vítaspyrnu fyrir Manchester United þegar Daniel Sturridge braut klaufalega á honum innan vítateigs. Wayne Rooney fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi. Rúmlega tuttugu mínútum fyrir leikslok fékk Manchester United aðra vítaspyrnu þegar Branislav Ivanovic braut á Danny Welbeck innan vítateigs. Rooney fór aftur á punktinn og minnkaði muninn í eitt mark 3-2. Á 83. mínútu gerðist síðan það ótrúlega að Manchester United náði að jafna metin. Javier Hernández skallaði þá boltann í netið eftir frábæra sendingu frá Ryan Giggs. Spennandi mínútur framundan og allt að verða brjálað á Stamford Bridge. Leiknum lauk með 3-3 jafntefli í einum af leikjum tímabilsins. Manchester United eru því 2 stigum á eftir Manchester City eftir leiki helgarinnar. Chelsea er í fjórða sætinu með 43 stig.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Fótbolti Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Sjá meira