Össur segir Hönnu Birnu vera ístöðulausa gagnvart Ólafi 29. júlí 2008 20:27 Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, er ístöðulaus gagnvart Ólafi F. Magnússyni, borgarstjóra, að mati Össurar Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra. Hann segir Hönnu Birnu ekki hafa náð neinum árangri við að lyfta upp fylgi flokksins í Reykjavík. Þetta kemur fram á vefsíðu iðnaðarráðherra. Össur segir að þrátt fyrir virðingu embættismanna og andstæðinga hafi Hönnu Birnu ekki tekst henni að breyta ásýnd flokksins. ,,Hún nær engum árangri við að lyfta fylginu. Fátt virðist benda til nokkurs sem getur komið í veg fyrir að Samfylkingin og VG vinni stórsigur í næstu borgarstjórnarkosningum, og hefji nýtt skeið vinstri stjórnar í borginni." ,,Vafalítið hanga Sjálfstæðismenn á þeirri von, að þegar hún verður loksins borgarstjóri í krafti hrossakaupanna sem ýta Ólafi innan skamms út úr skrifstofu borgarstjóra, og henni inn, muni hlutirnir breytast," segir Össur sem telur að skiptin muni litlu breyta. Hann telur Hönnu Birnu hafa veikst mikið í samstarfi sínu við Ólaf F. Magnússon. Össur spáir því að Ólafur muni reynast Sjálfstæðisflokknum erfiður þegar hann verður orðinn óbreyttur borgarfulltrúi. Ákvarðanir Ólafs og framkoma hafa verið sérkennilegar, að mati Össurar. ,,Aftur og aftur hefur komið í ljós, að hann þröngvar án samráðs fram ákvörðunum, sem eru settar fram sem einskonar boð að ofan. Yfirleitt kemur í ljós eftir á, að hann hefur ekki einu sinni haft fyrir því að leita samstarfs við samstarfsflokkinn. Nægir að nefna húsin við Laugarveg, Bitruvirkjun, miðborgarstjórann - og nú síðast ákvörðun hans um að reka Ólöfu Guðnýju Valdemarsdóttur úr skipulagsráði borgarinnar," segir Össur. Össur segir Ólaf vera myllusteininn sem mun tryggja valdaleysi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn sem og ístöðuleysi Hönnu Birnu gagnvart Ólafi.
Mest lesið Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira