Öskjuhlíðarsamkeppni

Vísir Fastir pennar 19. júlí 2010 10:03
Öskjuhlíðarsamkeppni
Guðmundur Andri Thorsson skrifar:

Á hlaupum á Akureyri sér maður haft í DV eftir Jóhannesi Jónssyni í Bónus að Hagar séu barnið hans. Og sárt að horfa upp á skiptingu fyrirtækisins. Honum væri nær að fagna því að vera loksins laus við þetta skrýmsli.

Óskiljanlegt er að leyft skyldi á sínum tíma að sameina Bónus og Hagkaup í eitt allsherjareinokunarfyrirtæki. Enn óskiljanlegra er að yfirvöld skyldu heimila innlimun 10/11 búðanna í þetta veldi. Samkeppni var markvisst útrýmt á matvörumarkaðnum eftir að hafa ríkt í nokkur ár, milli Bónusbúðanna og Haugkaups.

Eins og við vitum er frjáls samkeppni óbærilegt ástand fyrir kaupmenn. Enginn hagnast á frjálsri samkeppni nema kannski almenningur - og hverjum er ekki sama um hann?

Við tók þykjustusamkeppni sem við þekkjum svo vel hjá olíufélögum og símafyrirtækjum þessa lands; Öskjuhlíðarsamkeppni. Og um árabil höfum við búið við samkomulag um að þessi búð sé alltaf með krónu ódýrara en hin búðin um leið og þess hefur verið vandlega gætt að halda matvöruverðinu nægjanlega uppi til að hægt sé að greiða sómasamlegan arð. Fyrir arðinn af því að selja Íslendingum mat virtist á tímabili hægt að kaupa heilu og hálfu heimsborgirnar. Seinna kom að vísu í ljós að til stóð að kaupa heiminn út á krít en það breytir því ekki að gróðinn af því að selja Íslendingum gulrætur og paprikur, pillur, kóka kóla, og seinna hlutabréf í genunum í sjálfum sér, fyllti á tímabili unga menn - sem allir voru vinir - slíkri ofsatrú á sjálfum sér að þeir héldu að þeir kynnu fleiri klæki en nokkur annar kaupsýslumaður í heiminum. Það reyndist ekki svo.

Allt hafði annan róm?…

Fram að veldisdögum Bónuss og Hagkaups þar á undan höfðu heildsalar og innflytjendur og matvælaframleiðendur að vísu haft kverkatak á kaupmönnum hér á landi. Á haftaárunum störfuðu heildsalarnir með sérleyfi frá Sjálfstæðisflokknum og smáfurstakerfi hans og guldu honum líka sinn skatt í skýlausum trúnaði og beinhörðum peningum. Verð á landbúnaðarvörum var ákveðið af sérstökum nefndum sem gættu í orði kveðnu hagsmuna bænda en þó einkum valda- og einokunarkerfis sem byggt var kringum hitt smáfurstabandalagið sem þjóðin mátti þola, Framsóknarflokkinn.

Öll var þessi umsýsla þunglamaleg og þunghent og þjóðinni dýrkeypt en hún gerði þó að verkum að í hverfinu þar sem ég ólst upp, Vogunum í Reykjavík, voru um skeið að minnsta kosti sex verslanir í stuttu göngufæri fyrir lítinn dreng að sendast fyrir mömmu sína, mjólkurbúðir með misjafnlega hvefsnum konum; kjötbúðir með kátum köllum í hvítum og skítugum sloppum og fiskbúðir með fyrrverandi sjómönnum sem voru hálfgalnir af viðþolsleysi að komast aftur út á sjó. Að ógleymdri Teitsjoppu blessaðri þar sem mátti sjá unglingana verða til. Það var mannlíf í kringum þetta allt saman, þetta var ákveðin borgarmenning sem manni finnst stundum eins og fokið hafi út í buskann þegar bílaöldin útrýmdi öllu eins og gróðurinn sem fýkur burt í uppblæstri, og ekkert verður eftir nema grátt malbik, þögul bílastæði og fólkið fokið burt.

Vild og vild

Hagkaup var uppreisn gegn hinu niðurnjörvaða kerfi og þar tókst með hugkvæmni og vinnusemi - og góðum samböndum - að ná niður verði. Þangað flykktist fólk og þegar fyrirtækið óx og óx upp í ógurlegt veldi var ekki nema eðlilegt að glúrnir feðgar sæju sér leik á borði með nýja hugmynd að lágvöruverslunarkeðju - Bónus. Sú verslun hefur líka sinn sérstaka karakter og var stofnuð vegna þess að það var eyða á markaðnum, og naut líka mikilla vinsælda hjá almenningi, rétt eins og Hagkaup hafði þar á undan. Það var raunveruleg vild. Eftir því sem gervivildin óx í bókhaldinu þvarr hins vegar raunvildin hjá fólkinu.

Fólk kaus Bónus unnvörpum með buddunum. Þeir Bónus-feðgar fengu mikið frá íslensku þjóðinni - þeim var trúað fyrir miklu. Þeir keyptu sér snekkjur og hurfu inn í tilbúinn heim.

Það er náttúrlega tabú að tala um, en í raun og veru er það svo að íslenskir kaupsýslumenn þola ekki frjálsa samkeppni. Þeir eru friðlausir uns hægt er að stöðva hana. Þegar Hagar voru stofnaðir - og síðar útfærðir frekar - var þess jafnframt gætt að kítta upp í allar glufur á markaðnum. Sú eyða sem Bónus-feðgar höfðu fundið - var vandlega fyllt. Bónus-feðgarnir glúrnu sáu til þess að engir viðlíka hugkvæmir og þeir kæmust inn á markaðinn til að keppa við þá. Sjálfir voru þeir á snekkjunum sínum. Og það fór sem fór.




Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Hindranir hugarfarsins

Eins og orðið hefur áþreifanlega vart við á undanförn...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Háflug og fullveldi

Þegar Benedikt Sveinsson flutti frumvarp á Alþingi um stofnun háskóla þótti ýmsum nóg um h...  

Meira
Fastir pennar 27. jan. 2012 06:00

Samkeppnin er allra hagur

Samkeppniseftirlitið kynnti í gær mikla úttekt á verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði. ...  

Meira
Fastir pennar 27. jan. 2012 06:00

Ekki eins og að stela bíl

Ímyndum okkur skóframleiðanda sem rekur nokkrar verslanir í litlu landi. Skóframleiðandinn...  

Meira
Fastir pennar 26. jan. 2012 06:00

Tímabært að taka sönsum

Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur skilað skýrslu að beiðni ríkisstjórnarinnar þar sem ...  

Meira
Fastir pennar 26. jan. 2012 06:00

Vítahringur Vestursins

Einn ráðgjafa Clintons forseta sagðist áhugalaus um að eyða næstu jarðvist sinni sem forse...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Öskjuhlíðarsamkeppni