Viðskipti innlent

Óskar Hrafn hættur hjá Fréttatímanum

Birgir Olgeirsson skrifar
Óskar Hrafn sagði upp hjá Fréttatímanum á milli jóla og nýárs.
Óskar Hrafn sagði upp hjá Fréttatímanum á milli jóla og nýárs. Vísir/Anton Brink
Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur látið af störfum sem vefstjóri Fréttatímans. Óskar Hrafn sagði starfi sínu lausu á milli jóla og nýárs og er nú hættur störfum. Hann var ráðinn til starfa hjá Miðopnu, útgáfufélagi Fréttatímans, í febrúar í fyrra og var honum ætlað að stýra uppbyggingu félagsins á vefnum.

Í samtali við Vísi segir Óskar Hrafn ekkert sérstakt hafa komið upp á, hann hafi einfaldlega hætt störfum því hann vildi breyta til.

Þeir sem hafa fylgst með Óskari Hrafni á Twitter síðastliðna daga hafa eflaust orðið varir við að hann hefur þar birt lista yfir 57 launahæstu íslensku knattspyrnumennina á erlendri grund árið 2016.

Hann birti fyrsta nafnið föstudaginn 30. desember og er nú kominn á níunda launahæsta leikmanninn.

Óskar Hrafn starfaði lengi sem íþróttafréttamaður og starfaði til að mynda lengi vel sem yfirmaður íþróttadeildar 365.

Hann segir þessa upptalningu sína ekki merki um að hann sé að snúa aftur í íþróttafréttamennskuna.

„Ekkert sem er sérstaklega planað. En ég var lengi íþróttafréttamaður og hef gaman að því að fylgjast með þessu,“ segir Óskar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×