Innlent

Öryggisvörður slóst við þjófa í nótt

Gissur Sigurðsson skrifar
Öryggisvörðurinn fékk aðhlynningu á slysadeild.
Öryggisvörðurinn fékk aðhlynningu á slysadeild. Vísir/Pjetur
Öryggisvörður í matvöruverslun í vesturborginni meiddist í átökum við þjófa seint í gærkvöldi og þurfti að leita aðhlynningar á slysadeild.

Fjórir menn komu inn í verslunina á tólfta tímanum og reyndi einn að draga athygli vaqrðarins að sér á meðan hinir þrír fóru ránshendi um verslunina. Vörðurinn ætlaði að varna þeim öllum útgöngu og kom þá til ryskinga.

Tveir sluppu út , vörðurinn hélt einum í tökum og einn var enn á vettvangi þegar lögreglu bar að og handtók mennina. Glöggar myndir náðust með öryggismyndavélum af hinum tveimur og er vitað hverjir það eru. Öryggisvörðurinn var útskrifaður af slysadeild að aðhlynningu lokinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×