LAUGARDAGUR 25. MAÍ NÝJAST 11:37

Birkir vann sinn fyrsta sigur á Davis Cup

SPORT

Öryggi og verndun er höfuðatriði við Silfru

Fréttablaðið Innlent 04. júlí 2012 06:30
Álfheiður Ingadóttir
Álfheiður Ingadóttir
Þingvallanefnd ákveður á næsta fundi hvort innheimtu umdeilds gjalds fyrir kafara í Silfru verði frestað til 1. september. Nefndarformaðurinn segir áríðandi að stýra aðgangi að gjánni til að vernda umhverfið og tryggja öryggi kafara.

„Það er ekki hægt að fresta því að grípa til stýringar á umferðinni um Silfru,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar.

Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær gagnrýna ferðaþjónustufyrirtæki nýtt 750 króna gjald á þá sem stunda köfun og snork í gjánni Silfru. Þeim hafi komið á óvart þegar tilkynnt var með níu daga fyrirvara að gjaldið yrði lagt á frá og með 1. júlí.

Álfheiður bendir á að 12. desember í fyrra hafi Þingvallanefnd ákveðið að bjóða út köfunarleyfi í Silfru frá 1. maí á þessu ári. Mjög ítarlegt samráð hafi verið við viðkomandi fyrirtæki og Ríkiskaup komið að málinu.

„Ástæðan er öllum kunn: Þarna hafa á síðustu árum orðið mjög alvarleg slys, þar á meðal banaslys árið 2010. Helsta öryggisráðstöfunin er annars vegar að takmarka fjöldann sem er ofan í Silfru á hverjum tíma og hins vegar að ekki megi vera nema tiltekinn fjöldi sem kafar eða snorkar með hverjum leiðsögumanni,“ segir Álfheiður.

Formaður Þingvallanefndar segir að við nánari skoðun hafi útboð á sérleyfum þó ekki staðist lög. Hins vegar sé heimilt að leggja á svokallað gestagjald, ámóta og gjald fyrir tjaldstæði og veiðileyfi. Ákveðið hafi verið að fara þá leið. Útreikningar hafi leitt til að gjaldið verði 750 krónur fyrir hverja heimsókn í gjána. Þjóðgarðsverði sé falið að vinna tímaskiptingar í samvinnu við fyrirtækin.

„Þannig ættu fyrirtækin vissa tíma í Silfru en þyrftu ekki að fara í kappakstur austur til að reyna að vera fyrstir ofan í en ella láta sína viðskiptavini norpa á bakkanum og bíða,“ segir Álfheiður.

Þingvallanefnd tekur á næstu dögum afstöðu til tillögu um að gjaldtökunni verði frestað til 1. september. „Mér finnst það ákveðin sanngirni, kúfurinn af þessari traffík yrði þá farinn,“ segir Álfheiður. Fyrirtækin vilja hins vegar geyma málið í eitt ár en Álfheiður telur það ekki koma til álita.

„Við horfðum fyrst og fremst til þeirrar skyldu sem við höfum til að tryggja öryggi við Silfru og umhverfið sjálft. Það fer algerlega saman að stýra umferðinni við gjána og bæta aðstöðuna og það er það sem við munum gera,“ segir formaður Þingvallanefndar og bendir á að Silfra sé takmörkuð náttúrauðlind eins og margir fleiri staðir á Íslandi. Hún horfir út fyrir Þingvelli.

„Við þurfum að koma okkur upp aðgangsstýringu að þessari takmörkuðu auðlind sem íslensk náttúra er. Ég geri mér vonir um að næsta vetur verði hægt að vinna að gerð slíkra reglna, eins og á Nýja-Sjálandi og víðar.“
gar@frettabladid.is

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Innlent 25. maí 2013 09:12

Líkfundur á Seltjarnarnesi

Lík konu fannst í gærkvöldi við golfvöllinn á Seltjarnarnesi. Lögregla og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins voru kölluð til. Meira
Innlent 25. maí 2013 06:00

Ný aðflugsljós við Ægisíðu nauðsynleg segir Jón Gnarr

"Þarna á að fara að setja upp stór og ljót mannvirki, sem þar að auki eru með sterka lýsingu, á einni mestu útivistarperlu borgarinnar,“ segir Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæð... Meira
Innlent 25. maí 2013 06:00

Pyntinganefnd gagnrýnir skort á atvikaskráningum

Fangelsismál Evrópuráðsnefnd gegn pyntingum gagnrýnir meðal annars að ekki hafi verið ákveðið að tilkynna alvarlegt atvik sem nýlega kom upp í fangelsinu á Akureyri til viðeigandi stofnunar. Meira
Innlent 25. maí 2013 06:00

Ættleidd ungmenni í leit að uppruna sínum

"Það er alltaf að aukast að ungt fólk komi til okkar í upprunaleit,“ segir Kristinn Ingvarsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar, sem stendur fyrir fræðslufundum um helgina um leit ættle... Meira
Innlent 25. maí 2013 06:00

Segja meirihlutann starfhæfan

"Já, ég sit í starfhæfum meirihluta,“ svaraði Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, þegar oddvitar minnihlutaflokkanna í bæjarráði spurðu hann út í stöðu meirihlutans í Kópavogi. Meira
Innlent 25. maí 2013 06:00

Kafari án súrefnis sökk til botns

Tveir íslenskir kafarar björguðu í gær lífi norsks manns sem missti meðvitund er hann kafaði án súrefnis í gjánni Silfru á Þingvöllum. Meira
Innlent 25. maí 2013 06:00

Gegnsæ göng í stað brúarinnar

Meta á hvort hjóla- og göngutenging yfir Fossvog geti verið um gegnsæ og vatnsheld göng á botni vogsins. "Siglingamenn og fleiri hafa lýst áhyggjum vegna vegtengingar yfir Fossvog. Meira
Innlent 24. maí 2013 22:08

Afþakkaði aðstoð eftir endurlífgun - sjúkraflutningamenn hringdu í ræðismann

Kafari sem komst í hann krappan í Silfru síðdegis í dag neitaði aðstoð sjúkraflutningamanna eftir að hann hafði verið endurlífgaður. Meira
Innlent 24. maí 2013 21:11

Fíkniefnasalar handteknir á Akureyri

Í dag handtók lögreglan á Akureyri þrjá einstaklinga, eftir að bifreið þeirra hafði verið stöðvuð og rúm 40 grömm af amfetamíni fundist á einum farþeganna. Meira
Innlent 24. maí 2013 21:01

Bílaleigubílarnir í ágætu standi - einkabílarnir ekki

Lögreglan greip í gær til aðgerða til að stemma stigum við slæmu ástandi bílaleigubíla. Alls voru 520 bílar stöðvaðir við Leifsstöð og voru allir bílaleigubílar færðir í ástandsskoðun. Meira
Innlent 24. maí 2013 19:38

Ríkislögreglustjóri leigir flugvél undir 50 flóttamenn frá Króatíu

Til stendur að senda 50 króatíska ríkisborgara frá Íslandi með farþegarflugvél í næstu viku. Meira
Innlent 24. maí 2013 19:30

Átján virkjanakostir sem gætu færst í nýtingarflokk

Búast má við að allt að átján virkjanakostir verði færðir úr verndar- og biðflokki, og ýmist yfir í nýtingarflokk eða biðflokk, vegna stefnumörkunar nýrrar ríkisstjórnar um að endurskoða rammaáætlun. ... Meira
Innlent 24. maí 2013 18:41

Illugi Gunnarsson: Þú kannski flytur ræðu, það væri æðislegt

Ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðiflokks kom saman í dag á sínum fyrsta formlega fundi í stjórnarráðshúsinu. Sex nýir ráðherrar hófu störf í morgun þegar tóku við lyklavöldum í sínum ráðuneytum. Hö... Meira
Innlent 24. maí 2013 17:27

Franski ferðamaðurinn fundinn

Franski ferðamaðurinn, sem leitað hefur verið að á Fimmvörðuhálsi í dag, er kominn í leitirnar. Meira
Innlent 24. maí 2013 17:24

Köfunarslys í Silfru

Köfunarslys varð í Silfru á Þingvöllum milli fjögur og fimm í dag en björgunarsveitin Ingunn var kölluð út vegna slyssins, en um var að ræða hæsta viðbúnaðarstig vegna alvarleika málsins. Meira
Innlent 24. maí 2013 17:16

Búið að finna hvað olli banaslysi í Þjórsárdal

Bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar vegna andláts hjóna í hjólhýsi þeirra í Þjórsárdal þann 19. maí s.l. hafa leitt í ljós að samsetning á reykröri við gasofn í innréttingu hússins var í sundur upp undi... Meira
Innlent 24. maí 2013 16:56

Fyrsti íslenski dansarinn útskrifast úr Juilliard

Lilja Rúriksdóttir útskrifaðist í dag með BA gráðu úr hinum virta listaháskóla Juilliard í New York. Meira
Innlent 24. maí 2013 16:23

Hefði skammast sín fyrir að þora ekki í ráðherraembætti

Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi atvinnuvegaráðherra, segir að aldrei hafi annað komið til greina en að takast á við þau verkefni sem honum væri falið sem formanni annars stjórnarflokksins eftir ... Meira
Innlent 24. maí 2013 16:07

Fyrsti fundur nýrrar ríkisstjórnar afstaðinn

Eitt af fyrstu verkum nýrrar ríkisstjórnar var að samþykkja tillögu forsætisráðherra um að skipuð yrði ráðherranefnd um úrlausnir í skuldamálum heimilanna. Meira
Innlent 24. maí 2013 16:01

Baráttan fyrir Nasa heldur áfram

Agent Fresco, Eyþór Ingi, Friðrik Dór, GusGus, Helgi Björns og Todmobile eru meðal þeirra 200 tónlistarmanna og hljómsveita sem skora á borgarfulltrúa að hætta við fyrirhugaðar framkvæmdir við Ingólfs... Meira
Innlent 24. maí 2013 12:00

Kennarar þurfa að sýna árangur í starfi

Mark C. Taylor vekur viðbrögð innan háskólasamfélagsins með hugmyndum sínum um að taka fyrir fastráðningar prófessora og taka upp starfssamninga til sjö ára í staðinn. Háskólastarfið er langtímastarf,... Meira
Innlent 24. maí 2013 14:57

Öllum úr stórum hópi Króata synjað um hæli

Innanríkisráðuneytið, í umboði Ögmundar Jónassonar, ákvað að fresta ekki brottflutningi fólksins þrátt fyrir að niðurstaða Útlendingastofnunar um synjun hælis hefði verið kærð. Króatía verður aðili að... Meira
Innlent 24. maí 2013 15:04

Félag áhugakvenna um breytingaskeiðið stofnað í gær

Félag áhugakvenna um breytingaskeiðið var formlega stofnað í dag. "Löngu tímabært“, segir Edda Arinbjarnar, félagsfræðingur og formaður nýstofnaðs félags. Meira
Innlent 24. maí 2013 14:34

Lögreglan á Suðurnesjum leitar að brennuvargi

Ummerki á vettvangi benda til þess að um innbrot og íkveikju hafi verið að ræða þegar eldur kom upp í vinnusal Bláfells ehf. á Suðurnesjum í vikunni. Við íkveikjuna var notaður eldfimur vökvi, sem va... Meira
Innlent 24. maí 2013 14:25

36 fjármálaráðgjafar útskrifaðir

36 starfsmenn fjármálafyrirtækja útskrifuðust í gær úr námi til vottunar fjármálaráðgjafa við hátíðlega athöfn sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Fréttir / Innlent / Öryggi og verndun er höfuðatriði við Silfru
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000