Handbolti

Öruggt hjá Rut og félögum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rut Jónsdóttir.
Rut Jónsdóttir. vísir/ernir
Rut Jónsdóttir og stöllur hennar í liði FC Midtjylland sóttu góðan útisigur í danska handboltanum í kvöld.

Þær sóttu þá lið Silkeborg-Voel heim og unnu öruggan sigur, 19-26.

Rut skoraði tvö mörk úr þremur skotum í leiknum en hennar lið er í öðru sæti deildarinnar.

Silkeborg er í níunda sæti.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×