Körfubolti

Öruggt hjá Miami í oddaleiknum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dwayne Wade og Jeremy Lin eigast við.
Dwayne Wade og Jeremy Lin eigast við. vísir/getty
Miami Heat er komið áfram í undanúrslit Austurdeildar NBA eftir öruggan sigur á Charlotte Hornets, 106-73, í oddaleik í kvöld.

Miami lenti 3-2 undir í einvíginu en vann síðustu tvo leikina og tryggði sér þar með farseðilinn í undanúrslitin. Þar mætir liðið annað hvort Toronto Raptors eða Indiana Pacers.

Miami var mun sterkari aðilinn í leiknum í kvöld og náði mest 38 stiga forskoti. Charlotte-menn hittu skelfilega (32%) og töpuðu frákastabaráttunni 58-36.

Goran Dragic var stigahæstur í liði Miami með 25 stig en Gerald Green kom næstur með 16 stig. Loul Deng gerði 15 stig og Hassan Whiteside skoraði 10 stig og tók 12 fráköst.

Frank Kaminsky var stigahæstur hjá Charlotte með aðeins 12 stig.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×