Handbolti

Öruggt hjá Barcelona

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Guðjón Valur
Guðjón Valur Mynd/heimasíða Barcelona
Spænska stórveldið Barcelona skellti sænska liðinu Alingsas á útivelli í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði þrjú mörk fyrir Barcelona.

Það var mikið skorað í leiknum og þá ekki síst í fyrri hálfleik en Barcelona var 21-16 yfir í hálfleik.

Gestirnir juku forskotið er leið á seinni hálfleikinn og unnu öruggan sigur að lokum.

Eins og áður segir skoraði Guðjón Valur þrjú mörk fyrir Barcelona en Jesper Nöddesbo var markahæstur með 9 mörk. Nikola Karabatic og Kiril Lazarov skoruðu 6 mörk hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×