Órafmögnuð Lay Low í Flatey 22. ágúst 2009 06:45 Lay Low í Flatey þar sem upptökur fóru fram bæði innan- og utandyra.
Nýr tvöfaldur diskur með tónlistarkonunni Lay Low kemur að öllum líkindum út hérlendis fyrir jólin og erlendis eftir áramót. Á fyrri disknum verða sjö lög sem Lay Low tók upp órafmagnað í Flatey um síðustu helgi og á hinum verður DVD-mynddiskur. Tvö laganna eru ný, þar af annað sem hún samdi við ljóðið Sorgin frá árinu 1884 eftir skáldið Undínu, sem hét réttu nafni Helga Steinvör Baldvinsdóttir. Myndatökumenn voru á staðnum sem festu spilamennskuna á filmu og verða þær upptökur á DVD-disknum. „Okkur langaði að skjóta myndefni með Lovísu að flytja lögin sín og skoðuðum eyna í júní og tókum myndir,“ segir umboðsmaðurinn Kári Sturluson. „Í kjölfarið tókum við þetta lengra og kýldum á upptökur um helgina. Það voru engin tvö lög tekin upp á sama stað og það var tekið upp bæði úti og inni. Í einu lagi spiluðu hænsn ansi stórt hlutverk því þau voru á vappi í kring,“ segir hann. „Flatey á eftir að setja mark sitt á öll lögin því öll stemningin úr eynni smitast inn í upptökurnar. Við tókum þetta þannig upp og ætlum að láta þessar tökur standa.“ Leikstjórinn Denni Karlsson sem vann við heimildarmynd Sigur Rósar, Heima, stjórnaði upptökunum fyrir DVD-diskinn og um kvikmyndatöku sá Víðir Sigurðsson. Hljóðupptaka var í höndum Viðars Hákonar Gíslasonar, eða Vidda í Trabant. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Sjá meira