Opna tískuvígi fyrir herrana í fornfrægu húsi Álfrún Pálsdóttir skrifar 11. júlí 2014 11:30 Æskuvinirnir Sindri Snær Jensson og Jón Davíð Davíðsson opna herrafataverslunina Húrra Reykjavík á Hverfisgötu í haust. Mynd/Snorri Björnsson
Það hefur lengi blundað í okkur sá draumur að opna herrafataverslun. Frá áramótum höfum við markvisst unnið að undirbúningi Húrra Reykjavík og fóru áformin á fullt þegar ég flutti heim frá Kaupmannahöfn í apríl. Jón Davíð sagði síðan starfi sínu lausu nýlega og má því segja að meiri alvara hafi færst í hlutina,“ segir Sindri Snær Jensson, sem opnar herrafataverslunina Húrra Reykjavík í félagi við æskuvin sinn, Jón Davíð Davíðsson, í haust. Verslunin verður á Hverfisgötu 50, í húsi sem var byggt árið 1906 og á sér mikla verslunarsögu. „Við urðum ástfangnir af húsnæðinu en hin goðsagnakennda Bára bleika rak þar í áratugi verslunina „Hjá Báru“ og tók hún við húsinu af tengdaföður sínum sem einnig rak þar verslun. Erlendis eru allar sértækustu og flottustu verslanirnar staðsettar á aðalverslunargötu eða nærliggjandi hliðargötum. Það er mikið af spennandi hlutum að gerast í miðbæ Reykjavíkur og hefur Hverfisgatan nýlega gengið í endurnýjun lífdaga. Við munum svo ýta frekar undir þessa uppbyggingu með Húrra Reykjavík.“ Sindri Snær er markmaður hjá KR og heldur úti tískubloggsíðunni Sindrijensson.com en Jón Davíð er viðskiptafræðingur og starfar sem verslunarstjóri í Húsgagnahöllinni. Félagarnir segjast sækja innblástur frá mörgum af flottustu herrafataverslunum Danmerkur og Svíþjóðar þegar kemur að vöruúrvali og stemningu í versluninni. Þeir telja hafa hallað á karlmenn þegar kemur að úrvali verslana því ekki eru margar verslanir sem sinna eingöngu strákum. „Við viljum bjóða íslenskum karlmönnum upp á nýjan og ferskan valmöguleika í klæðnaði. Sá möguleiki er undir miklum áhrifum af skandinavískri hönnun sem sameinar vel gæði og notagildi í hversdagslegu amstri. Karlmenn munu þannig eignast sitt vígi í versluninni ef svo má segja,“ segir Sindri, sem var nýkominn af sölusýningu í Berlín þegar Lífið náði af honum tali. Þeir félagarnir stefna að því að opna verslunina snemma í haust. „Ef allt gengur að óskum er planið að opna með heljarinnar partíi fyrstu helgina í september.“Sindri Snær og Jón Davíð segja verslunina vera undir áhrifum frá Danmörku og Svíþjóð.Mynd/Snorri BjörnssonStraumar og stefnur í herratískunni næsta vetur? „Það sem maður tekur mest eftir er einfaldleiki. Flest betri vörumerki eru að bjóða upp á mjög herralega og klassíska liti, má þar nefna svart, hvítt, blátt og grátt. Eins ótrúlega og það virðist hljóma verður mikið úrval af hvítum flíkum og þá ekki bara skyrtum heldur einnig jökkum, buxum og peysum. Þá má greinilega sjá breytingu á því hvernig buxur eru sniðnar, undanfarin ár hafa mjög þröngar buxur (e. skinny fit) ráðið ríkjum en nú eru sniðin beinni. Þá hefur skapast mikil menning í kringum strigaskó og eru þeir orðnir mun meiri heilsársvara frekar en árstíðartengd. Mestu máli skiptir þó alltaf að velja sér vandaðan og vel sniðinn fatnað sem hentar einstaklingnum hverju sinni,“ segir Sindri Snær.
Mest lesið Spáir Ísrael sigri í Eurovision Lífið „Bangsar eru í raun partur af fjölskyldunni“ Lífið Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon Tónlist „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Lífið Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus Lífið „Ef ég gæti hnoðað einn úr tíu bestu væri það himnaríki á jörð“ Lífið Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana Lífið „Það gekk ekki hvað henni leið illa“ Lífið Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Lífið „Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði Lífið Fleiri fréttir „Stútfull og við það að springa en hefur aldrei klikkað“ 23 ára og með sína eigin förðunarlínu Laufey skein skært á Met Gala Best klæddu stjörnurnar á Met Gala „Elska hraðann, pressuna og stressið“ Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Alltaf með naglaþjöl en gleymir stundum lyklunum Innsýn í fatahönnun framtíðarinnar Lófaklapp og litagleði á tískusýningu útskriftarnema Strangheiðarleg dreifbýlistútta og lopapeysan í uppáhaldi „Elska að hafa skipulagt kaos“ „Spyr mig oft hvort öll þessi vinna sé þess virði“ Listræn súkkulaðiupplifun og girnilegt smakk Menningarlífið iðar og HönnunarMars hefst á morgun Hefur hannað fyrir Miley Cyrus og Erykah Badu Íslensk skartgripahönnun á besta stað í New York Starfaði fyrir pólska herinn og sýnir nú skartgripi á Garðatorgi Kemur beint frá París með vistvæna tískustrauma „Frá naglalakki hjá ömmu í iðnaðarmann í skítugum fötum“ Myndavél frá afa algjör fjársjóður „Það mikilvægasta er að vera trúr sjálfum sér“ Munnskolið mikilvægt í förðunarstarfinu „Sjálfstraustið er besti fylgihluturinn“ Sjá meira