Skoðun

Opið og lýðræðislegt samfélag fyrir alla

Stjórn jafnaðarmanna í Norðurlandaráði skrifar
Í dag, á Helfarardeginum 27. janúar, heiðrum við minningu þeirra sem létu lífið í helför nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Við heiðrum minningu þeirra milljóna kvenna, karla og barna sem létu lífið þegar hið opna og lýðræðislega samfélag vék fyrir brjálæði haturs, fordóma og skorti á umburðarlyndi.

Réttlátt og lýðræðislegt samfélag byggir á grunngildunum um virðingu, frjálsræði og jöfnum rétti allra. Allir fæðast með þann grundvallarrétt, þau mannréttindi, að þurfa ekki að líða fyrir mismunum á grundvelli kynþáttar, kynferðis, kynhneigðar eða trúar. Hugmyndagrundvöllur jafnaðarmennskunnar byggir í raun á því að allir einstaklingar eigi að hafa sömu möguleika og sama rétt og þar liggur eitt mikilvægasta verkefni okkar í fjölmenningarsamfélögum nútímans. Í baráttunni fyrir réttlátu samfélagi þar sem allir einstaklingar eru metnir til jafns.

Það er auðvelt að gefa sér sem sjálfsagðan hlut að allir hafi í raun sömu möguleika og rétt. Auðvelt að gefa sér að í dag, 27. janúar 2015, sé heiminum ekki lengur skipt í „okkur“ og „þau“ þar sem annar hópurinn er mikilvægari en hinn. Gefa sér að við séum komin lengra. En því miður, sú er ekki raunin.

Á Norðurlöndunum og í gervallri Evrópu gnauða nú naprir vindar fortíðar. Hægriöfgahópar gera alvarlega atlögu að okkar opna og lýðræðislega samfélagi með fordómafullum boðskap um kynþáttahyggju, fjandskap við innflytjendur og mismunun þjóðfélagshópa. Við okkur blasir vaxandi hatur í garð gyðinga og múslima og afar ógnvekjandi og hættuleg samfélagsþróun.

Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði vara eindregið við þeim hægriöfgum og þjóðerniskennd sem nú ógna okkar opnu og lýðræðislegu samfélögum og gegn þeim ætlum við að vinna. Við munum áfram berjast fyrir jöfnum möguleikum allra og þeim mannréttindum að þurfa ekki að upplifa mismunun.

Stillum saman strengi

Við verðum að stilla saman strengi okkar í baráttunni fyrir hinu opna og lýðræðislega samfélagi, bæði á Norðurlöndunum og í gervallri Evrópu. Við verðum að læra af sögunni og á sama tíma vinna markvisst gegn niðurrifi hatursumræðu og fordóma. Til þess þurfum við einnig lýðræðisleg, öflug verkfæri.

Með hið lifandi sögusafn Svía sem fyrirmynd, Forum för Levande Historia, hvetjum við þess vegna í dag öll norrænu löndin og Evrópu alla, til að standa sameiginlega að nýrri stofnum, sem með útgangspunkt í hörmungum Helfararinnar myndi berjast fyrir lýðræði, umburðarlyndi og jöfnum rétti allra. Berjast fyrir opnu lýðræðissamfélagi, gegn hatri og skorti á umburðarlyndi.

Marit Nybakk,

Noregi

Phia Andersson,

Svíþjóð

Guðbjartur Hannesson,

Íslandi

Karin Gaardsted,

Danmörk

Tuula Peltonen,

Finnlandi

stjórn jafnaðarmanna í Norðurlandaráði




Skoðun

Sjá meira


×