Innlent

Ölvaður með barn í bílnum klessti á

Árekstur varð í Keflavík á föstudagskvöld þegar bifreið var ekið aftan á aðra, sem beið á rauðu ljósi. Þegar lögregla ræddi við ökumenn á vettvangi reyndist vera mikil áfengislykt af þeim ökumanni sem ekið hafði aftan á.

Hann var því færður á lögreglustöð. Í bílnum með honum var barn hans sem hann hafði verið að sækja og kvaðst hann hafa verið á heimleið þegar óhappið varð.

Manninum var gerð grein fyrir því að barnaverndarnefnd yrði tilkynnt um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×