Ólöglegt að dreifa myndefni úr öryggismyndavélum Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. ágúst 2014 16:46 Myndir sem þessar eru ekki ætlaðar til dreifingar. Þrátt fyrir það rata þær iðullega í fjölmiðla.
Persónuvernd telur að dreifing mynda úr öryggismyndavélum, eins og þegar lögreglan leitar að einhverjum sem er grunaður um refsiverða háttsemi eða kann að hafa upplýsingar um slíkt, stangist á við lög. Lögreglan, til að mynda á höfuðborgarsvæðinu, hefur töluvert reitt sig á slíkar myndbirtingar í kjölfar síaukinna vinsælda hennar á Facebook. Það sem af er ári hefur Persónuvernd nokkrum sinnum orðið þess vör að myndir úr eftirlitsmyndavélum hafi verið birtar opinberlega, til dæmis í fjölmiðlum. Persónuvernd tíundar þær reglur sem gilda um slíka birtingu á heimasíðu sinni: „Í 2. mgr. 9. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga er fjallað um hvenær miðla má efni sem safnast við rafræna vöktun og hefur að geyma viðkvæmar persónuupplýsingar, s.s. um meinta refsiverða háttsemi, sbr. b-lið 8. tölul. 2. gr. laganna. Nánar tiltekið segir í 2. mgr. 9. gr. að söfnun slíkra upplýsinga sé heimil að eftirfarandi skilyrðum fullnægðum:1. að vöktunin sé nauðsynleg og fari fram í öryggis- og eignavörsluskyni;2. að það efni sem til verður við vöktunina verði ekki afhent öðrum eða unnið frekar nema með samþykki þess sem upptaka er af eða samkvæmt ákvörðun Persónuverndar; heimilt sé þó að afhenda lögreglu efni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað en þá skuli þess gætt að eyða öllum öðrum eintökum af efninu; og3. að því efni sem safnast við vöktunina verði eytt þegar ekki er lengur málefnaleg ástæða til að varðveita það, nema sérstök heimild Persónuverndar standi til frekari varðveislu,“ segir á heimasíðunni.Persónuvernd áréttar að samkvæmt framangreindu á ekki að afhenda öðrum en lögreglu myndefni úr eftirlitsmyndavél sem sýnir meinta, refsiverða háttsemi, en hún metur hvort ástæða sé til að birta upptökuna í þágu rannsóknar máls.Bókun Vísað er til bókunar af fundi Persónuverndar og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hinn 18. janúar 2011 þar sem fjallað var um birtingu vöktunarefnis, en í bókuninni stendur meðal annars:„Formaður stjórnar [Persónuverndar] reifaði málið og ræddi hvort þörf væri fyrir sérstakan vettvang innan lögreglu til að taka við myndefni úr eftirlitsmyndavélum.Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, taldi svo ekki vera. Hann kvað nú þegar vera tekið við slíku efni með skilvirkum hætti.Við öllu væri greiðlega tekið og menn gætu snúið sér til næstu lögreglustöðvar. Hann fór yfir feril þjófnaðarmála og annarra brota hjá lögreglu. Í miklum meirihluta tilvika væri það svo að annað hvort sá lögreglumaður sem væri með málið eða aðrir lögreglumenn þekktu þann sem er á upptökunni. Því tæki afgreiðsla slíkra mála yfirleitt skamman tíma. Þá hefði lögregla birt upptökur úr öryggismyndavélum þar sem ekki hefði tekist að finna grunaða einstaklinga. Hins vegar væri slíkt ekki gert nema í alvarlegum málum og almannahagsmunir krefðust þess. Þá hafi lögreglan einnig í einu tilviki nýtt sér nýstofnaða fésbókarsíðu til að finna grunaða. Þess hafi þá verið gætt að taka efni út af síðunni um leið og hinn eftirlýsti var fundinn. Stefán benti einnig á að í sumum tilvikum hafi myndbirting eiganda verslunar tafið fyrir lausn máls, þar sem viðkomandi afbrotamenn hafi farið í felur eftir að upptakan hafi verið birt. Stefán kvaðst líta svo á að innan verslunargeirans þyrfti, í meira mæli en nú er, að mega miðla þjófamyndum. Hann benti á þá leið að heimila öryggisfyrirtækjum miðlun sín á milli og kvaðst myndu benda hlutaðeigandi á leiðir til að lögleiða slíka framkvæmd.Niðurstaðan var sú að samstaða væri um hvernig haga bæri málum.“
Tengdar fréttir Lögreglan leitar tveggja manna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt meðfylgjandi myndband á facebook síðu sinni og óskar eftir að ná tali af mönnunum sem sjást á myndbandinu vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. 16. júlí 2014 20:05 Myndband af ráninu í Dalsnesti Í myndskeiðinu má sjá ræningjann, sem er um 180 sm á hæð. Hann var klæddur í hettuúlpu, ljósgráar joggingbuxur og dökka Converse-skó. 11. mars 2014 17:40 Lögreglan leitar aðstoðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar upplýsinga í tengslum við mál sem er til rannsóknar hjá embættinu. 8. maí 2014 11:18 Lögreglan leitar tveggja manna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af mönnunum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. 31. júlí 2014 23:34 Lögreglan leitar manns Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar 10. júlí 2014 10:42 Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Hvers vegna að fella ísbirni? Innlent Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Innlent Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Erlent Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Erlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Innlent Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Innlent Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Innlent Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Innlent Fleiri fréttir Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar Búið að taka sýni úr ungu birnunni Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Maður sem var leitað við Vík fannst látinn Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan Biðin óásættanleg og vill skýr svör frá ríkinu Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Sveitarfélögin krefja ríkið svara um NPA Norðurlönd dýpka samvinnu í varnarmálum Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Sjá meira
Lögreglan leitar tveggja manna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt meðfylgjandi myndband á facebook síðu sinni og óskar eftir að ná tali af mönnunum sem sjást á myndbandinu vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. 16. júlí 2014 20:05
Myndband af ráninu í Dalsnesti Í myndskeiðinu má sjá ræningjann, sem er um 180 sm á hæð. Hann var klæddur í hettuúlpu, ljósgráar joggingbuxur og dökka Converse-skó. 11. mars 2014 17:40
Lögreglan leitar aðstoðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar upplýsinga í tengslum við mál sem er til rannsóknar hjá embættinu. 8. maí 2014 11:18
Lögreglan leitar tveggja manna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af mönnunum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. 31. júlí 2014 23:34
Lögreglan leitar manns Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar 10. júlí 2014 10:42