Handbolti

Öll lið myndu sakna Arons Pálmarssonar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vonar það besta. Snorri Steinn Guðjónsson.
Vonar það besta. Snorri Steinn Guðjónsson. fréttablaðið/valli
Aron Pálmarsson mætti á sína fyrstu æfingu með íslenska landsliðinu í gær eftir að hann varð fyrir líkamsárás um síðustu helgi. Aron er með bólgur í andliti, skurð við augabrún og er kinnbeinsbrotinn.

Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari sagði á blaðamannafundi í gær að það væri dagamunur á nafna sínum en að hann væri allur að koma til. Hann taldi ólíklegt að hann myndi spila með í æfingaleikjunum í Þýskalandi en væri vongóður um næstu æfingaleiki þar á eftir og um þátttöku hans á HM í Katar.

Snorri Steinn Guðjónsson leikstjórnandi hafði ekki miklar áhyggjur af honum enda ástandið á leikmannahópnum almennt gott. „Það er bara einn leikmaður meiddur núna. Fyrir EM í fyrra snerist öll umræða um hversu mikil meiðsli væri í hópnum en það er allt annað upp á teningnum nú,“ sagði hann.

„Mér sýnist að það ríki almenn bjartsýni um að Aron verði með og ég er líka bjartsýnn þangað til annað kemur í ljós. Auðvitað myndu öll lið sakna leikmanns eins og hans. Aron er á góðum degi einn besti handboltamaður heims og hann hefur verið í þrusuformi síðustu vikur og mánuði. Við söknum hans og erum betur settir með hann innanborðs.“

Dagur Sigurðsson, þjálfari Þýskalands, segir augljóst að fjarvera hans setji strik í undirbúning Íslands. „Hver mínúta sem hann missir af á æfingum er tapaður tími en ég held að öll liðin sem eru á leið til Katar séu að glíma við meiðsli og fjarveru sterkra manna. Það má ekki gera of mikla dramatík úr þessu máli þó svo að vissulega sé fjarvera hans áfall fyrir íslenska liðið,“ segir Dagur.


Tengdar fréttir

Landsliðsfyrirliðinn fordæmir árásina á Aron

„Ég skil ekki hvernig svona lagað getur gerst – að það skuli ráðist á annan mann algjörlega tilefnislaust. Það er fyrir neðan allar hellur. Ég vona að það verði kært og komist til botns í þessu máli,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson um líkamsárásina sem félagi hans í landsliðinu, Aron Pálmarsson, varð fyrir um helgina.

Aron Palmarsson beaten up in late night brawl

Aron Palmarsson, handball player with Kiel in Germany and the Icelandic national team, was injured in a late night brawl downtown Reykjavik this past weekend.

Aron: Tilefni til umhugsunar

Landsliðsþjálfari Íslands í handbolta segir að árásin á Aron Pálmarsson sýnir að menn þurfi að fara varlega og passa sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×