Öll fallegu orðin

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 23. desember 2011 14:00
Valeyrarvalsinn.
Valeyrarvalsinn.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir. skrifar:
Bækur. Valeyrarvalsinn. JPV. Höfundur: Guðmundur Andri Thorsson.

„Ég er löngu dauður. Ég ætti að vera fyrir löngu slokknaður og kannski er ég það líka en hef bara ekki áttað mig á því enn. Ég er bara vitund,“ (7) segir sögumaður Valeyrarvalsins, sem fylgist af alúð með þorpinu sínu og íbúum þess.

Valeyrarvalsinn er sagnasveigur, sextán sögur sem tengjast, og gerast allar á sömu tveimur mínútunum í þorpinu Valeyri. Kórstjórinn Kata hjólar niður eftir Strandgötunni á leiðinni í Samkomuhúsið þar sem verða tónleikar um kvöldið og hún hjólar „í gegnum“ allar sögurnar. Það er táknrænt í mörgum skilningi (og skemmtilegt í því ljósi að í öllum bókum Guðmundar Andra Thorssonar koma fyrir kvenpersónur með nafninu Kata – eða Katrín). Hinir væntanlegu tónleikar sameina fólkið, tónlistin ómar í höfðum þess. Kata hefur nefnilega „fundið milli lófa sér þennan viðkvæma hljóm. Valeyrarhljóminn.“ (10)

Þorpslífinu er lýst fagurlega og sagt af þorpsbúum og þeirra stússi. Hvernig fólk tekur á erfiðleikunum sem lífið færir því, hvernig menn ná ekki sambandi, hvernig hægt er að vera saman en dvelja samt í tveimur heimum. Hvernig maðurinn er alltaf einn.

„Það er svo erfitt að vera manneskja, Salka mín,“ skrifaði HKL og margar persónur Valeyrarvalsins eiga sannarlega erfitt. Þær þrá að eignast barn en geta það ekki, þær glíma við spilafíkn og drykkjuskap, þær halda framhjá og yfirgefa fólk sem þarf á þeim að halda. Þær hafa líka sjálfar verið misnotaðar og særðar. Þær dreymir um annað líf en megna ekki að breyta neinu.

Sagt er að það sé höfuðsynd rithöfundar að þykja ekki vænt um persónur sínar. Guðmundur Andri er ekki syndugur rithöfundur í þessu tilliti. Þvert á móti sýnir hann persónum sínum föðurlega umhyggju (svona „pabbi skilur drenginn“ viðhorf). Manneskjur geta verið svo miklir vitleysingar, svo mikil grey. En það er alltaf ástæða fyrir því að þær hegða sér eins og þær gera og ef staldrað er við í stað þess að dæma kemur ýmislegt óvænt í ljós. Væntumþykja höfundarins í garð persóna sinna smitast líka yfir til lesandans, sem fær áhuga á þessu fólki og er alls ekki sama um það.

Það er hollt að lesa um Lífið með öllum þess gæðum og göllum. Þegar sagt er af brothættum manneskjum eru fáir höfundar sem sýna meiri nærgætni en Guðmundur Andri Thorsson. Og þeir eru mjög fáir sem kunna að skrifa svona fallegan texta.

Raunar eru hálfgerð helgispjöll að vera að lesa þessa bók nú í byrjun desember, vegna þess að Valeyrarvalsinn er aðfangadagskvöldsbók. Hún er sparibók sem maður les með kjötsvima og konfekti, þegar síðustu tónar útvarpsmessunnar eru þagnaðir og værðin færist yfir. Valeyrarfólkið fylgir manni svo inn í nóttina og býr lengi í hugskotinu.

Niðurstaða: Undurfalleg saga, sem ilmar af sól og seltu og mannlegri þrá.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 25. maí. 2012 12:00

Alltumlykjandi og áhrifarík

Sigur Rós tekur stóra beygju með rólegri og hrífandi plötu. Á heildina litið er Valtari fí...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 22:00

Barsmíðar og bollukinnar

Aðdáendur órakaða ólátabelgsins Jason Statham verða himinlifandi, en realistar ættu að hal...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Öll fallegu orðin