Handbolti

Ólafur sterkur í góðu jafntefli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafur í landsleik.
Ólafur í landsleik. vísir/daníel
Landsliðsmaðurinn Ólafur Andrés Guðmundsson átti magnaðan leik er lið hans, Kristianstad, nældi í sterkt jafntefli gegn pólska stórliðinu Kielce í Meistaradeildinni.

Lokatölur þar 35-35 en Kielce leiddi í leikhléi, 17-19.

Ólafur skoraði sjö mörk í leiknum úr ellefu skotum. Sex marka hans komu í fyrri hálfleik.

Kristiandstad komst í fimm stig í B-riðli keppninnar og er í sjöunda og næstneðsta sæti riðilsins.

Kielce er komið upp að hlið Barcelona á toppnum en hefur leikið einum leik meira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×