Íslenski boltinn

Ólafur Páll: Veigar Páll getur hjálpað okkur að skora fleiri mörk

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafur Páll Snorrason fagnar komu Veigars Páls Gunnarssonar.
Ólafur Páll Snorrason fagnar komu Veigars Páls Gunnarssonar. vísir/ernir
Eins og Vísir greindi frá í dag er Veigar Páll Gunnarsson genginn í raðir Íslandsmeistara FH en hann samdi við Hafnafjarðarliðið til eins árs í dag.

Veigar Páll spilaði síðustu fjögur tímabil með Stjörnunni og varð Íslandsmeistari með liðinu 2014. Hann byrjaði aðeins þrjá leiki á síðustu leiktíð en skoraði engu að síður fimm mörk í 17 leikjum.

„Fyrst og fremst er hann frábær fótboltamaður. Það vita allir að Veigar er frábær í fótbolta en hinsvegar er hann líka mjög sterkur og stór karakter þannig hann mun hjálpa okkur á fleiri stöðum en bara inn á fótboltavellinum,“ sagði Ólafur Páll Snorrason, aðstoðarþjálfari FH, við Vísi í dag en hann sat blaðamannafundinn með Veigari.

Sjá einnig:Veigar Páll: Staða mín hjá Stjörnunni hefði versnað

Veigar Páll mun samhliða því að spila með FH þjálfa í afreksskóla félagsins en FH-ingar ætla honum stóra hluti í framtíðinni og ekki bara inn á vellinum.

„Hluti af komu hans hingað er við sjáum í framtíðinni fyrir okkur að hann verði öflugur þjálfari. Hann tekur að sér ákveðið hlutverk í afreksskóla FH. Það eru upphafið en vonandi ílengist hann inn á vellinum líka,“ sagði Ólafur Páll.

Veigar Páll Gunnarsson skrifar undir við FH í dag.vísir/ernir
Erum að skoða okkar mál

Ólafur Páll segir FH vera að vinna í sínum leikmannamálum en liðið hefur engan misst og engan fengið fyrir utan Veigar Pál.

„FH er engin undantekning er varðar að leita sér að leikmönnum á þessum tíma árs. Við erum að vinna í nokkrum málum og vonandi ganga hlutirnir upp á næstu dögum eða vikum,“ sagði hann.

„Það eru ekki margir leikmenn á lausu en þetta er alltaf eins. Þeir sem eru lausir skoða sína mál og velja svo og hafna.“

FH-liðið átti í vandræðum með að skora mörk á síðustu leiktíð en liðið skoraði aðeins 32 mörk á leið sinni að Íslandsmeistaratitlinum.

„Við eigum eftir að sjá hvort einhverjir yfirgefi FH-liðið og hvort við þurfum þá að styrkja þann hluta leikmannahópsins. Við erum með skýra sýna á það sem við ætlum að reyna að vinna í þennan veturinn og eitt af því er að skora fleiri mörk. Það er líka ein af þeim ástæðum að Veigar er mættur,“ sagði Ólafur Páll Snorrason.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×