Handbolti

Ólafur og félagar áfram í undanúrslit

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Guðmundsson í leik með Kristianstad.
Ólafur Guðmundsson í leik með Kristianstad. Vísir
Kristianstad er komið áfram í undanúrslit úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir sigur á Redbergslid í kvöld, 24-19.

Ólafur Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir Kristianstad í kvöld en liðið lenti ekki í teljandi vandræðum með Redbergslid og vann rimmuna, 3-0.

Kristianstad varð deildarmeistari með yfirburðum en liðið vann alls 30 af 32 leikjum sínum í deildarkeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×