Ólafur Bjarki og Rúnar: Mjög gaman að skora Henry Birgir Gunnarsson í Novi Sad skrifar 23. janúar 2012 08:00 Rúnar Kárason skoraði glæsilegt mark eftir að hann kom inn á seint í leiknum í gær. Fréttablaðið/Vilhelm
Kjúklingarnir í íslenska landsliðshópnum fengu nánast allir að spila í sigrinum glæsilega gegn Ungverjum í gær. Þeir Ólafur Bjarki Ragnarsson og Rúnar Kárason fengu nokkuð að spila og Ólafur Guðmundsson kom inn undir restina. Aðeins Aron Rafn Eðvarðsson fékk ekki tækifærið í dag. Þetta var fyrsta stórmótsreynsla Rúnars en Ólafur Bjarki hafði komið inn í einni sókn fyrr í mótinu. Báðir skoruðu þeir sín fyrstu mörk á stórmóti og voru óragir og ákveðnir á vellinum. „Ég kom svo fljótt inn og fékk engan tíma til að undirbúa mig. Þetta var eins og að koma inn í hvern annan leik. Eftir á að hyggja var þetta talsvert sérstakara. Það var gaman að leggja sitt af mörkum og þetta var frábær sigur liðsandans," sagði Rúnar hógvær en hann skaut næstum því höfuðið af markverðinum er hann skoraði með sínu öðru skoti. „Ég þurfti smá tíma til þess að hitna. Það var mjög gaman að sjá boltann í netinu." Þegar Ólafur Bjarki skoraði þá lak boltinn í netið. Inn fór hann og það skipti öllu máli. „Það mátti nú ekki tæpara standa og ljúft að sjá hann í netinu," sagði Ólafur Bjarki en hann klúðraði síðan hraðaupphlaupi. Skaut himinhátt yfir. „Ég ætlaði svoleiðis að smyrja hann í samskeytin en boltinn flaug úr hendinni á mér. Þetta var líkara snertimarkssendingu í amerískum fótbolta en skoti úr hraðaupphlaupi," sagði HK-ingurinn léttur. „Þetta var rosalega gaman."
Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira