Ólafur: Fúlt að tapa Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Kaupmannahöfn skrifar 7. september 2010 22:25
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari sagði að það hefði vitaskuld verið ansi súrt í broti að tapa fyrir Dönum á Parken í kvöld. Danir unnu 1-0 sigur og skoruðu sigurmarkið í uppbótartíma. Þá hafði íslenska liðið haldið aftur af Dönum í 90 mínútur með góðum árangri. „Ég held að frammistaða leikmanna hafi verið mjög góð og að allir hafi gengið sáttir af velli með sína frammistöðu. Auðvitað var það fúlt að tapa en við vorum í fínu lagi í 90 mínútur. Það vantaði smá brodda í okkur - að þora að vera á boltanum en það kemur með reynslunni.“ Hann segir litlum knattspyrnuþjóðum oft refsað fyrir sín mistök og þannig var það í gær. „Það má aldrei missstíga sig og þá er þeim refsað. Þannig hefur það verið í fyrstu tveimur leikjum okkar í þessum riðli - okkur hefur verið refsað illa.“ Danir sóttu stíft upp hægri kantinn í fyrri hálfleik en íslenska liðið náði að stöðva þær sóknaraðgerðir í þeim síðari. „Við breyttum aðeins til og snerum okkur aðeins öðruvísi í varnarleiknum. Við reyndum að fá Danina til að sækja á hinn kantinn frekar og það gekk ágætlega. Við vissum svo að ef okkur tækist að halda þeim í núllinu færu þeir að taka ákveðna sénsa. Þá fannst mér við fá fleiri tækifæri til að sækja en það vantaði herslumuninn að okkur tækist að gera það almennilega.“ „Svo kom markið og það er erfitt að segja hvort eigi að skrifa það á einbeitingarleysi eða óheppni. Ætli það hafi ekki verið beggja blands.“
Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Fleiri fréttir Mexíkó – Suður-Afríka | HM fer af stað í Mexíkóborg Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjá meira