Ökukennarar ætla að fjalla um mál kærðs kollega Andri Ólafsson skrifar 18. mars 2008 16:09
Guðbrandur Bogason, formaður Ökukennarafélags Íslands, segir að stjórn félagsins muni fjalla um mál ökukennara sem sex nemendur hafa kært fyrir kynferðislega misnotkun. Guðbrandur hafði ekki heyrt af málinu þegar Vísir hafði samband við hann í dag en sagðist hins vegar líta það alvarlegum augum. Guðbrandur vildi ekki svara hvort hann teldi rétt að kennarinn héldi áfram að taka til sín nemendur á meðan hann er grunaður um kynferðisbrot. Hann hallast þó frekar að því að réttara væri að kennarinn tæki sér frí frá störfum þar til niðurstaða fæst í málið. "Í félaginu er hins vegar starfandi siðanefnd og ég geri ráð fyrir að hún taki eitthvað á þessu. Mér var hins vegar ekki kunnugt um að svona mál væri í gangi í augnablikinu og þess vegna höfum við ekkert fjallað um það. En ég held að í ljósi þessara frétta verðum við að ræða þetta mál í stjórninni," segir Guðbrandur. Eins og Vísir sagði frá í dag er ökukennari í Reykjavík grunaður um að hafa misnotað kynferðislega sex nemendur sína. Nemendurnir hafa allir kært ökukennarann til lögreglunnar. Samkvæmt heimildum Vísis hefur kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakað málið undanfarna mánuði og er sú rannsókn á lokasprettinum. Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn staðfesti í samtali við Vísi í dag að mál líkt þessu væri inn á borði deildarinnar og rannsókn þess væri á lokastigi. Rannsókn málsins hófst þegar sex drengir kærðu ökukennarann fyrir kynferðisbrot. Þeir sóttu allir ökutíma hjá manninum þegar þeir voru á sautjánda aldursári samkvæmt heimildum Vísis. Þegar rannsókn málsins lýkur verður málið sent til Ríkissaksóknara og mun hann taka ákvörðun um hvort ákærur verði gefnar út á hendur ökukennaranum eða ekki.
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Fleiri fréttir Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Sjá meira