Lífið

Októberspá Siggu Kling – Krabbi: Taktu fótinn af bremsunni

Sigga Kling skrifar
Elsku uppáhalds Krabbinn minn. Þú ert opnasta og jákvæðasta stjörnumerkið og þetta segi ég vegna þess það hefur komið í ljós að þið Krabbarnir lesið stjörnuspána mína mest, takk fyrir það, elsku tilfinninga Krabbarnir mínir.

Það eina sem getur gert þig óhamingjusaman er að lifa of mikið í fortíðinni og pæla of mikið í hvað öðru fólki finnst. En mundu að það er enginn ríkari en einhver sem kemur tómhentur í partíið en samt hlaupa allir upp um hálsinn á honum. Það eru þannig áhrif sem þú hefur á fólk í kringum þig.

Það sem stoppar þig stundum er að þú treystir fólki ekki fyrir hjarta þínu, þú ert svo oft með fótinn á bremsunni en núna er bein leið áfram og sjálfstraustið eykst með hverri mínútu.

Þú verður meira og meira í sviðsljósinu og láttu þér bara líka það vel. Eini tímaþjófurinn sem er í kringum þig er frestunarpúkinn svo fáðu þessa dásamlegu vini sem þú átt til þess að hjálpa þér að klára málin sem þú hefur áhyggjur af.

Ef þú ert á lausu, láttu þá ekki gömul ástarmistök stoppa þig. Mistök eru eins og sár en ekki eins og tattú!

Mottó: Það er engin tilviljun til.

Frægir Krabbar: Bryndís Schram, Sigga Lorange Ostabúðarskvísa, Auddi Blö, sem við elskum öll, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og dúlla, Ólafur Stefánsson, handboltakappi og heimspekingur, Edda Sif, Sindri Sindrason, Ásdís Halla Bragadóttir, Hjörvar Hafliðason og Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari .




Tengdar fréttir

Októberspá Siggu Kling – Naut: Vertu svolítið montið

Elsku langflottasta Nautið mitt. Ekki reyna að vera fullkomið, það er svo drepleiðinlegt! Þú þarft að krydda tilveruna með húmor og kæruleysi, þá er ekki séns að þú sökkvir í áhyggjudrullupollinn.

Októberspá Siggu Kling – Vog: Sýndu traust

Elsku Vogin mín. Þú ert að fara inn á dásamlegt tímabil! Þú átt afmæli í þessum mánuði svo núna eru þín áramót og það sem gerist núna sýnir þér í hvaða átt þú ert að fara næstu mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×