Okkur blæðir!

Fréttablaðið Aðsendar greinar 31. janúar 2012 06:00
Okkur blæðir!
Teitur Guðmundsson skrifar:
Ég ætla að vekja máls að nýju á þeirri staðreynd að samtengd rafræn sjúkraskrá á landsvísu hefur ekki enn litið dagsins ljós þrátt fyrir áralangar umræður um nauðsyn og gagnsemi slíks fyrirkomulags. Nýverið voru haldnir Læknadagar með miklum myndarbrag í hinu nýja ráðstefnuhúsi okkar Hörpunni, en þetta er stærsta einstaka ráðstefna lækna á Íslandi á hverju ári. Þar voru auðvitað ræddar ýmsar hliðar læknisfræðinnar, en mér er minnistætt málþing um svokallað „gate keeping“ eða tilvísanakerfi og þjónustustýringu í heilbrigðiskerfinu. Á þessum fundi komu fram sjónarmið ólíkra hagsmunaaðila um efnið og í pallborði gafst tækifæri til umræðna sem voru líflegar og drógust svo mjög á langinn að virtur geðlæknir þurfti að minna á að tíminn væri löngu liðinn og komið að næsta dagskrárlið.

Það var ánægjulegt að fylgjast með samhljómi allra þeirra sem viðstaddir voru hversu mikilvægt og nauðsynlegt atriði þeir teldu það vera að tengja saman sjúkraskrá á landsvísu. Einn okkar þekktari heimilislækna frá Akureyri lýsti mikilli ánægju sinni með hversu vel hefði tekist að tengja saman sjúkraskrá fyrir allt Norðurland, heilsugæslur og heilbrigðisstofnanir auk Fjórðungssjúkrahúss. Innleiðingin hafi tekist með ágætum og hagræði sé að þessu fyrirkomulagi. Hann klykkti svo út í kunnum hæðnistón og óskaði okkur Sunnlendingum til hamingju með fyrirkomulagið á höfuðborgarsvæðinu.
Í þessu ljósi er líklega rétt að upplýsa um það að sjúkraskrá er þegar tengd saman á nokkrum landfræðilega stærri heilbrigðisumdæmum landsins eins og t.a.m. á Austurlandi, Norðurlandi og Vesturlandi. Unnið er að samtengingum víðar, en höfuðborgarsvæðið, þar með talin Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landspítali og einkareknar stofur sérfræðinga eru ekki tengdar saman. Hér fer þó fram meginþorri samskipta við sjúklinga sem og milli fagaðila í heilbrigðiskerfinu.

Þetta kann að koma á óvart, en við læknar þekkjum allir undrun þá sem skín úr augum skjólstæðinga okkar þegar þeir komast að því að við getum ekki lesið í tölvunni hvað aðrir læknar eða fagaðilar hafa gert, skrifað út af lyfjum eða pantað af rannsóknum. Það sér hver heilvita maður að þetta er algerlega forkastanlegt, hvað þá heldur að sum landsvæði geti slíkt en önnur ekki.

Það er enn fremur sérlega ámælisvert þegar haft er í huga að eflaust yfir 95% af öllu heilbrigðiskerfinu hérlendis nota sama hugbúnaðinn undir sjúkraskrá. Möguleikar til samtengingar eru því umtalsverðir og mun auðveldari í framkvæmd en víðast annars staðar í heiminum.

Nú ætla ég hæstvirtum velferðarráðherra ekkert annað en að hann sé með þetta verkefni í algerum forgangi og muni innan tíðar kynna framtíðarsýn sína og stjórnvalda um það hvernig þessum málum skuli varið. Það verður að taka ákvörðun, við erum búin að bíða alltof lengi eftir þessu.

Okkur blæðir, er sannarlega rétt orðað í þessu samhengi, því kostnaður í heilbrigðiskerfinu er mikill og nauðsynlegt að koma í veg fyrir tvíverknað, bæta samskipti og upplýsingaflæði auk þess að tryggja öryggi sjúklinga. Við verðum að spara! En við erum að eyða óheyrilegum fjármunum í endurteknar rannsóknir, ítrekaðar lyfjaútskriftir, innlagnir sem við hefðum getað forðast og svo mætti lengi telja.

Í viðskiptaheiminum er oft talað um ROI (Return on Investment) þegar fara á út í fjárfestingar. Ekki skal ég mæra fjármálaheiminn en þetta er skynsamleg nálgun og nauðsynleg áður en haldið er af stað í hvers kyns stærri kaup á búnaði eða þjónustu. Þær upplýsingar sem ég hef og tímalengd sú sem rætt er um í þessu samhengi, að tengja saman sjúkraskrá á landsvísu svo hún verði nothæf, myndu laða að hvaða fjárfesti sem er ef tekið væri tillit til ROI.

Ég hef heyrt ýmsar skýringar á því hvers vegna ekki er enn búið að tengja okkur saman hér fyrir sunnan. Flestar byggja á einhvers konar valdatafli og hugmyndafræðilegu ósætti um það hvað kerfið skuli geta, aðrar á því að þetta kosti heil ósköp. Engin þeirra er þó rétt tel ég og merkilegt nokk getur enginn almennilega útskýrt fyrir mér hvað stöðvar ferli samtengingar á sjúkraskrá. Sé það svo að við ætlum okkur að nýta núverandi kerfi með öllum þeim kostum og göllum er okkur ekkert að vanbúnaði, enda búin að sýna fram á það í hinum landshlutunum. Ekki nema meiningin sé að skipta alfarið um kerfi sem vissulega er rétt að skoða í þessu stóra samhengi, en kostnaður yrði væntanlega umtalsverður.

Svona rétt í lokin læt ég fylgja með litla sögu, en á tímabili var aðgangsstýring á gagnagrunni Landspítalans sem kom í veg fyrir að læknar á slysa- og bráðadeild til dæmis gætu séð gögn sjúklinga á geðdeild. Slíkar aðgangsstýringar eru skynsamlegar innan vissra marka og auðvitað er nauðsynlegt að haft sé eftirlit með þeim sem nota sjúkraskrár við vinnu sína. Það gat hins vegar komið sér afar illa ef einstaklingar sem voru í bráðri lífshættu leituðu á slysa- og bráðadeild og engar upplýsingar voru í kerfunum um sjúklinginn hjá meðhöndlandi lækni. Þetta hefur lagast sem betur fer.
Okkur blæðir! Áfram nú!

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Okkur blæðir!