Bílar

Ofurútgáfa Porsche Panamera

Finnur Thorlacius skrifar
Porsche Panamera Turbo S er með sömu 570 hestafla vél.
Porsche Panamera Turbo S er með sömu 570 hestafla vél.
Porsche ætlar að bjóða 100 eintök af stóra lúxusbílnum Panamera í sannkallaðri ofurútgáfu og munu bílarnir kosta um 250.000 dollara, eða um 30 milljónir króna.

Þessir 100 bílar verða með öflugustu vél sem fæst hefur í Panamera, V8 og 4,8 lítra bensínvél sem orkar 570 hestöfl með sínar tvær forþjöppur. Það dugar þessum stóra bíl að komast á 100 km hraða á 3,6 sekúndum og hámarkshraðinn er 309 km/klst.

Bíllinn verður 15 cm lengri en hefðbundinn Panamera sem skapar aukið rými fyrir aftursætisfarþega. Að innan verður bíllinn troðinn öllum þeim lúxus sem sést hefur í Panamera og auk þess verður leðurinnrétting hans í mörgum litatónum. Af þeim 100 bílum sem framleiddir verða eru 30 þeirra ætlaðir á Bandaríkjamarkað. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×