Öflugur jarðskjálfti á Ítalíu - sex látnir 20. maí 2012 10:04 Skjálftinn sem var 6 stig að stærð átti upptök um 35 kílómetra norður af borginni Bologna á einungis 10 kílómetra dýpt samkvæmt upplýsingum BBC.
Að minnsta kosti sex eru látnir og fimmtíu slasaðir eftir að snarpur jarðskjálfti reið yfir norður Ítalíu í nótt. Verið er að leita að fólki í rústum bygginga en sögufræg virki og kirkjuturnar urðu fyrir skemmdum. Skjálftinn reið yfir rétt eftir klukkan fjögur að staðartíma, hann var 6 stig að stærð og átti upptök um 35 kílómetra norður af borginni Bologna á einungis 10 kílómetra dýpt samkvæmt upplýsingum BBC. Skjálftinn fannst alla leið til Feneyja, Mílanó og Flórens. Fjölmiðlum ber ekki saman um hversu margir eru látnir en í frétt á vef BBC segir að tveir hafi látist þegar keramik verksmiðja í Sant'Agostino di Ferrara sem þeir unnu í hrundi til grunna. Þá lést kona í Bologna úr hjartaáfalli þegar hún var að rýma hús sitt, Marokkóskur maður lést þegar verksmiðja sem hann var að vinna í hrundi og annar þegar vinnuskúr hans féll saman þá hafa tvö lík fundist í rústum bygginga samkvæmt vef CNN. Margar byggingar skemmdust í skjálftanum, sumar sögufrægar svo sem virki í San Felice Ferrara og kirkjuturnar í mörgum smábæjum á svæðinu. Þá hafa spítalar verið rýmdir og þúsundir manna flúðu út á götur borga þegar skjálftinn reið yfir. Tveir eftirskjálftar hafa mælst á svæðinu, einn upp úr klukkan fimm að stærð 5,1 og síðan annar stuttu síðar upp á 4,1. Skjálftinn er einn sá stærsti sem orðið hefur á þessu svæði en smáskjálftir eru algengir, árið 2009 létust tæplega þrjú hundruð manns í jarðskjálfta sem átti upptök sín við bæinn L'Aquila á mið Ítalíu.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður Sjá meira