Innlent

Öflugasta tölva Íslands vígð

Fjórar rannsóknastofnanir standa að ofurtölvu sem staðsett er í Thor Data Center í Hafnarfirði. Samstarf sem þetta þykir marka nokkur tímamót og gefur góð fyrirheit um framtíð upplýsingatæknigeirans hér á landi.
Fjórar rannsóknastofnanir standa að ofurtölvu sem staðsett er í Thor Data Center í Hafnarfirði. Samstarf sem þetta þykir marka nokkur tímamót og gefur góð fyrirheit um framtíð upplýsingatæknigeirans hér á landi. Fréttablaðið/Stefán
Ofurtölva sem er samstarfsverkefni fjögurra norrænna rannsóknastofnana var vígð í gagnaveri Advania í gær. Gæti eflt upplýsingatæknigeirann hér á landi og verið fyrsta skrefið í átt að frekara samstarfi.

Öflugasta tölva landsins, ofurtölva sem þjónar rannsóknaverkefnum á Íslandi og öðrum Norðurlöndum, var formlega tekin í notkun í gagnaveri Thor Data Center í gær.

Um er að ræða samvinnuverkefni rannsóknastofnana frá Íslandi, Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Verkefnið, sem ber nafnið NHPC, er nýstárlegt að mörgu leyti, en það sem einna helst ber til tíðinda er staðsetning tölvunnar hér á landi og sameiginlegt, fjölþjóðlegt eignarhald, en hún er notuð til að vinna að fjölda rannsóknarverkefna í löndunum fjórum.

Um er að ræða hluta af tilraunaverkefni en tilgangur þess er meðal annars að meta kosti þess að staðsetja tölvur sem þessar nær orkulindum, sem og að meta hina fjölmörgu þætti, meðal annars skipulagslega og tæknilega, sem upp geta komið þegar um sameiginlegt eignarhald, umsjón og rekstur er að ræða. Reynist þetta verkefni vel, er mögulegt að fleiri samvinnuverkefni muni líta dagsins ljós á komandi árum.

Ebba Þóra Hvannberg, verkefnisstjóri NHPC, segir í samtali við Fréttablaðið að ástæða þess að verkefnið hafi verið sett upp hér á landi sé margþætt. Ísland og Thor Data Center, sem er í eigu Advania, hafi boðið ódýrasta kostinn auk þess sem gagnaverið gengur fyrir endurnýjanlegum orkugjöfum sem þyki eftirsóknarvert.

„Þá þótti einnig nýstárlegt að bjóða upp á hýsingu í gagnaveri en ekki í tölvusal háskóla,“ bætti Ebba við. „Það gefur okkur mikið svigrúm til að stækka við okkur í framtíðinni.“

Ebba segir að þótt tölvan hafi verið vígð formlega í gær hafi hún verið í gangi, til reynslu, frá áramótum og reynst afar vel sem og fjarlægðin milli tölvunnar og rannsakenda í öðrum löndum.

„Fjarlægðin er engin fyrirstaða. Það kom meðal annars fram í máli danska kerfisstjórans, en hann sagði að töfin sem verður vegna fjarlægðarinnar sé einungis 35 millisekúndur.“

Ebba segir NHPC-verkefnið geta haft mikla þýðingu fyrir upplýsingatæknigeirann hér á landi.

„Við erum að vona að þetta sýni möguleikana sem eru í boði hér á landi og erum einmitt að auglýsa verkefnið í Evrópu og Bandaríkjunum. Þetta mun því vonandi hjálpa gagnaversiðnaðinum hér á landi.“ thorgils@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×