Innlent

Öðrum skipverjanum sleppt úr haldi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi í tvær vikur en öðrum þeirra verður sleppt í dag.
Mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi í tvær vikur en öðrum þeirra verður sleppt í dag. VÍSIR/Anton Brink
Lögreglan mun ekki fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir báðum skipverjunum sem grunaðir eru um að bera ábyrgð á dauða Birnu Brjánsdóttur, heldur aðeins öðrum þeirra.

Þetta segir Grímur Grímsson,  yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókn málsins, en manninum sem verður sleppt í dag hefur þó enn réttarstöðu grunaðs manns í málinu. Lögreglan telur hins vegar ekki þörf á að hafa hann lengur í gæsluvarðhaldi.

Ekki liggur fyrir hversu langt varðhald farið verður fram á yfir hinum manninum en samkvæmt upplýsingum fréttastofu mun hann vera sá sem sést aka burt af hafnarsvæði Hafnarfjarðarhafnar um klukkan sjö laugardagsmorguninn 14. janúar þegar Birna hvarf. Hinn maðurinn hafði skömmu áður farið aftur um borð í togarann Polar Nanoq.

Mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi í tvær vikur og sætt einangrun á Litla-Hrauni á meðan en varðhaldið rennur út klukkan 16 í dag. Þeir eru grunaðir um manndráp en játning í málinu liggur ekki fyrir.

Birna sást seinast í eftirlitsmyndavélum við Laugaveg 31 klukkan 05.25 aðfaranótt laugardagsins. Lík hennar fannst í fjörunni við Selvogsvita átta dögum síðar. Staðfest hefur verið að henni var ráðinn bani en lögreglan hefur ekki viljað tjá sig nánar um dánarorsökina.

Jarðarför Birnu fer fram frá Hallgrímskirkju á morgun klukkan 15. Fjölskylda hennar afþakkar blóm og kransa en bendir þeim sem vilja minnast hennar á að styrkja Slysvarnafélagið Landsbjörg.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×