Tónlist

Nýtt lag frá Hákoni Guðna: Samið þegar veturinn var sem verstur

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hákon Guðni Hjartarson
Hákon Guðni Hjartarson
Hákon Guðni Hjartarson er tvítugur söngvari og lagahöfundur frá Akureyri. Út er komið frá honum nýtt lag sem heitir Shine On Me en það samdi hann með Sigga Sigtryggssyni og Wesley Steed.

„Ég hef áður gefið út fjögur lög sem öll hafa fengið ágætar viðtökur en þetta er fyrsta lagið sem ég gef út í samvinnu við Sigga,“ segir Hákon. Lagið samdi Hákon í vetur þegar veðrið var upp á sitt allra versta og hann þráði ekkert frekar en sól og sumaryl.

Á döfinni hjá Hákoni er nám í tónlistarskólanum ICMP, Institute of Contemporary Music Performance, í London. Námið hefst í haust. „Það er ekki beinlínis ókeypis að búa og lifa í London þannig ég mun verja stærstum hluta sumarsins út á sjó að safna fyrir vetrinum.“

Lagið Shine On Me má heyra hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×