Innlent

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands veitt í dag

MYND/GVA

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag kl. 17. Þetta er í tólfta sinn sem þau eru veitt en markmið þeirra er að verðlauna námsmenn sem unnið hafa framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt eru af Nýsköpunarsjóði námsmanna, eins og segir í tilkynningu frá skrifstofu forsetans.

Fimm verkefni eru tilnefnd til verðlaunanna í ár:

1. Áhrif aldurs á utangenamerki mannsins en það er unnið af Martin Inga Sigurðssyni.

2. Geo-Breeze sem unnið er af Hildigunni Jónsdóttur og Valdimar Olsen.

3. Nýsköpun í sýndarverum, en það er unnið af Hrafni Þorra Þórissyni.

4. Rafmagnsflugan, verkefni Steinþórs Bragasonar.

5. Þráðlaus mæling stökkkrafts sem er verkefni Guðfinnu Halldórsdóttur og Björns Ómarssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×