Bíó og sjónvarp

Nýjasta mynd Michaels Moore hans versta þegar litið er til aðsóknar

Birgir Olgeirsson skrifar
Michael Moore kom hingað til lands í maí síðastliðnum.
Michael Moore kom hingað til lands í maí síðastliðnum. Vísir/Getty/Helgi Kristinn
Nýjasta mynd bandaríska leikstjórans Michael MooreWhere to Invade Next, er hans versta mynd þegar litið er til aðsóknar. Í myndinni ferðast Moore um heiminn í leit að lagasetningum sem Bandaríkin gætu tekið upp.

Ferðaðist Moore meðal annars til Noregs, Ítalíu, Frakklands og Íslands þar sem hann tók marga þjóðþekkta einstaklinga á tali hér á landi. Þeirra á meðal má nefna Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta og Ólaf Þór Hauksson, sérstakan saksóknara.

Kvikmyndagerðafólk á vegum Moore fór einnig í heimsókn í Kvíabryggjufangelsið en Ólafur Ólafsson, Sigurður Einarsson og Magnús Guðmundsson, sem eru í afplánun í fangelsinu vegna dóms sem þeir hlutu í Al-Thani málinu, kvörtuðu undan heimsókninni til Umboðsmanns Alþingis.

Breska dagblaðið The Guardian greinir frá því að myndin var frumsýnd í 308 kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum um liðna helgi og þénaði þar 897 þúsund dollara, um 114 milljónir íslenskra króna. Það gerir um 2.900 dollara í hverju kvikmyndahúsi, um 370 þúsund krónur.

Það er umtalsvert lægra en myndin hans The Big One, frá árinu 1998, tók inn í miðasölu, 4.452 dollara, og einnig lægra en kvikmyndin hans Canadian Bacon frá árinu 1995.

Það er einnig mun lægra en myndin hans frá árinu 2009, CapitalismA Love Story þénaði í miðasölu, 57.991 dollara.

Frumsýna átti myndina fyrir jól og þótti hún á tímabili líkleg til að hreppa Óskarsverðlaunatilnefningu. Svo fór að hún var ekki tekin til almennra sýninga fyrr en um liðna helgi. Ráðgert er að sýna hana í Þýskalandi, Lúxemborg, Grikklandi, Svíþjóð og Hollandi í vor. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort hún verður sýnd í Bretlandi.

Á vef Smárabíós kemur fram að myndin verði tekin til sýninga hér á landi 18. mars.

Myndin er með 6,6 í einkunn á vefnum IMDb.com þegar þetta er ritað, metin 76 prósent fersk á vef Rotten Tomatoes og með 63 í einkunn á vef Metacritic.


Tengdar fréttir

Michael Moore á landinu

Bandaríski kvikmyndagerðamaðurinn Michael Moore er staddur á Íslandi og kom hann til landsins í dag.

Moore farinn af landi brott

Bandaríski kvikmyndagerðamaðurinn Michael Moore er farinn af landi brott en hann kom til Íslands á föstudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×